Ríkisstjóra New York gefinn úrslitakostur 11. mars 2008 17:00 Eliot Spitzer er einn helsti stuðningsmaður Hillary Clinton. Hér eru þau á blaðamannafundi í New York í ágúst 2007. MYND/AFP
Eliot Spitzer, ríkisstjóra New York, hefur verið gefinn lokafrestur af andstæðingum sínum til að segja af sér embætti. Að öðrum kosti verði hann kærður vegna ásakana um að hann hafi nýtt sér þjónustu vændiskonu. Helsti andstæðingur hans úr hópi repúblíkana í New York gaf honum tvo sólarhringa til að segja af sér. Spitzer hefur ekki viðurkennt að hafa borgað fyrir kynlíf, en hann sagði á blaðamannafundi að hann hefði brugðist fjölskyldu sinni. Getgátur eru uppi um að hann gæti einnig átt von á ákæru vegna rannsóknar á óreglulegum greiðslum sem bárust inn á reikning gleðikonunnar. Stjórnmálamenn í New York eru slegnir vegna ásakananna gegn Spitzer sem komst til valda vegna áherslu á að uppræta spillingu. James Tedisco, leiðtogi repúblíkana á þinginu í New York, sagði: „Ef hann segir ekki af sér á næstu einum til tveimur sólarhringum munum við undirbúa lögsókn á hendur honum og koma honum þannig úr embætti." Spitzer baðst afsökunar á athæfi sínu á blaðamannafundi í gær. „Ég hef valdið vonbrigðum og ekki lifað samkvæmt þeim siðareglum sem ég ætlast til af sjálfum mér," sagði hinn 48 ára gamli fjölskyldufaðir þriggja unglingsstúlkna. „Ég verð að fá tíma til að endurvinna traust fjölskyldunnar." Hillary Clinton forsetaframbjóðandi kom sér hjá því að svara spurningum um kynlífshneyksli Spitzers sem er pólitískur bandamaður hennar. Aðspurð svaraði hún: „Ég hef ekkert að segja um málið. Auðvitað sendi ég mínar bestu óskir og hugsanir til ríkisstjórans og fjölskyldu hans." Spitzer var eitt sinn talinn rísandi stjarna innan Demókrataflokksins. Hann tók við embætti ríkisstjóra í janúar á síðasta ári eftir yfirburðasigur og átta ár sem ríkissaksóknari í New York.
Tengdar fréttir Ríkisstjóri New York gripinn með lúxusmellu Ríkisstjórinn í New York berst nú fyrir pólitísku lífi sínu eftir að hann var gripinn með lúxusmellu á hóteli í Washington í síðasta mánuði. 11. mars 2008 06:45 Mest lesið Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent Meirihlutinn sprakk eftir fjóra mánuði Innlent Skólabörn sáu nakinn hótelgest úr skólastofunni Innlent Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Erlent Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Erlent Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Innlent Fólk láti reyna á húsráð áður en það leiti á yfirfulla Læknavakt Innlent „Veit ekki hvort maður á að hlæja eða gráta eða brosa“ Innlent Fékk ekki að borða nema hún stundaði kynlíf Innlent Lægðin ætlar ekki að láta okkur í friði alveg strax Veður Fleiri fréttir Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Keyrði inn í mannfjölda norður af Sydney Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Menntaskólanemar mótmæla: Íslensk stúlka varð fyrir táragasi Syrgði Sovétríkin og hótaði notkun kjarnorkuvopna Fær umboðið í fangið fjórum dögum eftir uppgjöf Skipar sérstakan saksóknara vegna hópnauðgunar við Cornell-háskóla Boðaði ríkisstjórn á fund vegna mótmæla nemenda „Á lífi eins og er“ eftir misheppnaða aftöku Írani grunaður um að skipuleggja hryðjuverk Uppörvandi fréttir fyrir Demókrata Sniðganga bandamenn á NATO-fundum Svissneskir jöklar rýrnað um tæp tuttugu prósent á fimm árum Gera óháða rannsókn á hópnauðgun við háskólann Dæmd í Danmörku fyrir stuld og sölu rándýrra Pokémon-spila Sjá meira
Ríkisstjóri New York gripinn með lúxusmellu Ríkisstjórinn í New York berst nú fyrir pólitísku lífi sínu eftir að hann var gripinn með lúxusmellu á hóteli í Washington í síðasta mánuði. 11. mars 2008 06:45