Enski boltinn

Villa og Chelsea semja um Sidwell

Elvar Geir Magnússon skrifar
Steve Sidwell.
Steve Sidwell.

Steve Sidwell er á leið til Aston Villa frá Chelsea fyrir fimm milljónir punda. Sidwell á aðeins eftir að gangast undir læknisskoðun svo hægt verði að ganga frá sölunni.

Sidwell kom til Chelsea frá Reading á frjálsri sölu síðasta sumar. Hann verður fyrstu kaup Martin O'Neill í sumar.

Nú er talið enn líklegra en áður að Gareth Barry fari til Liverpool en Villa vill fá 17 milljónir punda fyrir Barry.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×