Innlent

Segir Morgunblaðið fara í söluferli eftir helgi

Hreinn Loftsson stjórnarformaður Birtíngs.
Hreinn Loftsson stjórnarformaður Birtíngs.

Hreinn Loftsson stjórnarformaður Birtíngs segist hafa verið í símasambandi við Árvakursmenn um hugsanleg kaup á útgáfufélaginu. Eins og Vísir hefur sagt frá hefur Birtíngur, sem meðal annars gefur út DV, lýst yfir áhuga á að kaupa Morgunblaðið. Söluferli fer í gang eftir helgi sem á að vera gagnsætt og opinbert.

„Við höfum verið í símasambandi við þá þar sem okkur hefur verið tjáð að það fari í gang ákveðið söluferli eftir helgi þar sem leitað er að nýjum hluthöfum. Við verðum bara þátttakendur í því en vitum annars lítið," segir Hreinn í samtali við Vísi.

Eins og komið hefur fram eru miklir erfiðleikar í rekstri Árvakurs, Útgáfufélags Morgunblaðsins, en stærsti lánadrottni félagsins er Glitnir banki.

Hreinn segir að bankinn hafi falið framkvæmdarstjóra félagsins og stjórnarformanni að halda utan um söluferlið. „Þeir hafa sagt að stefnt sé að dreiðfu eignarhaldi og við verðum bara að sjá hvernig framvinda mála verður eftir helgi."

Í fréttum Stöðvar 2 í vikunni var því haldið fram að alls hafi tólf félög og einstaklingar óskað eftir upplýsingum um stöðu Árvakurs.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×