Lít á þetta sem styrk fyrir mig sem listamann Breki Logason skrifar 19. apríl 2008 11:25 Eyþór Ingi fær töskuna góðu frá Bubba Morthens í gærkvöldi. MYND/Arnþór Birkisson
Það var hinn 18 ára gamli Eyþór Ingi Gunnlaugsson frá Dalvík sem hreppti söngvarastöðuna í Bandinu hans Bubba í gærkvöldi. Í lokaþættinum sigraði hann Arnar Már Friðriksson eftir harða keppni. Eyþór fékk einnig þrjár milljónir króna í verðlaunfé. Vísir náði á Eyþór fyrir stundu þar sem hann var á leiðinni í sturtu og spurði hvað hann ætlaði að gera við peningana sem Bubbi gaf honum í gær? „Ég ætla að fara vel með þessa peninga og lít meira á þetta sem styrk fyrir mig sem listamanna. Ætli maður nýti þetta því ekki eitthvað í þágu listarinnar," segir Eyþór Ingi hógvær en Bubbi ráðlagði honum að sleppa því að kaupa hlutabréf fyrir peningana. „Nei ég ætla ekki að gera neitt svona yfirborðskennt eins og að kaupa hlutabréf," segir Eyþór og hlær. Þegar úrslitin voru kunn í gærkvöldi kom Bubbi Morthens á svið og afhenti honum tösku með þremur milljónum króna. Taskan var þó lokuð og var ekkert opnuð í þættinum. Blaðamanni lá því forvitni á að vita hvort það hefðu í raun og veru verið einhverjir peningar í töskunni? „Verður maður ekki bara að segja no comment við því," svarar Eyþór og hlær. Aðspurður hvort hann hafi búist við því að hafa betur í gærkvöldi segir Eyþór. „Alls ekki, og sérstaklega ekki þegar stundin rann upp þegar krýna átti einhvern sigurvegara. Ég bjóst alls ekki við því að heyra nafnið mitt og þó það sé klisja þá er Arnar alveg geðveikur söngvari og það hljóta allir að sjá það," segir Eyþór og viðurkennir að sigurinn hafi því verið mjög sætur. Hann segir framhaldið óráðið og nú séu menn á byrjunarreit um hvað skuli gera næst. Hann segist þó ekki ætla að vera of fljótfær með því að gefa út plötu strax í sumar. „Ég ætla hinsvegar að reyna að spila og syngja eins mikið og vel og ég get," segir Eyþór en þegar er farið að hafa samband við hann með hugsanleg verkefni. Vísir óskar Eyþóri innilega tilhamingju með sigurinn.
Mest lesið „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Lífið Furðulegar Eddutilnefningar: Nína Dögg, Ólafur Darri og Edda sniðgengin Menning Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Lífið Hljóðblöndunin hörmung en Hebbi gamli bjargaði kvöldinu Gagnrýni Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Lífið Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Lífið Björk, Sigur Rós og ríflega þúsund aðrir krefjast sniðgöngu Tónlist Fagnaði sigri með bumbukossi Lífið Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn Lífið Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Lífið Fleiri fréttir Rifjaði upp martröðina á Arnarhóli Fagnaði sigri með bumbukossi „Ég er ekki stoltur af því hvernig ég lét“ Laufey með lag í nýja Pradadjöflinum Særir burt drauga og dáleiðir sársauka í burtu Sigurður Ingi brenndi jakkafötin á tímamótum Hafi alltaf trúað því að gæskan myndi sigra Hvítvín, sushi og blautir kossar í Smárabíói Oddvitaáskorunin: Öfundar alla sem kunna pólsku Köttur í Kópavogi vekur athygli um allan heim Hleypur um LA og ætlar að vinna Bakgarðinn „Það eru margar drottningar í Flokki fólksins“ Daði Freyr og Gugusar koma fram á Hálendishátíð Ari Edwald selur í Garðabænum „Justin Bieber var með sturtuhausinn minn“ Sleikbás, smokkar og sjóðheitar skvísur „Eins og að vera með tifandi tímasprengju innra með sér“ Stjörnulífið: „Var að berjast við að gráta ekki“ Áttu aldrei von á að verða foreldrar innan árs Ómögulegt að afneita sorginni til lengri tíma Krakkatía vikunnar: LEGO, lakkrís og kubbalaga saur Alex fetaði í fótspor Bó á dánardegi hans Opnar sig um kvíða og þunglyndi Láta lægð í kvikmyndaiðnaði ekki stöðva sig og opna nýtt stúdíó Pétur Jóhann bregður á leik vegna nýrrar bókar Jóns Ársæls „Það var ekkert sem greip mig þegar pabbi minn fór í fangelsi“ Þetta reddast undir áhrifavaldi Íslands Saumaði föt úr gardínum fyrir ballið Fréttatía vikunnar: Kvika, Kristján og Krakkamín Yngsta systkinið fjögurra ára og það elsta fimmtíu og fimm Sjá meira