Borgin á verk Kjarvals 28. febrúar 2008 16:44
Hæstiréttur staðfesti í dag sýknudóm Héraðsdóms Reykjavíkur í máli erfingja Jóhannesar Kjarvals á hendur Reykjavíkurborg vegna verka listmálarans. Afkomendur Kjarvals kröfðust þess að dómstólar viðurkenndu eignarrétt þeirra á yfir fimm þúsund listaverkum og fleiri verðmætum sem flutt voru úr vinnustofu vinnustofu Jóhannesar Kjarval síðla árs 1968. Byggðu þeir á því að ekki væri sannað að listamaðurinn hefði með munnlegri yfirlýsingu 7. nóvember 1968 gefið Reykjavíkurborg hina tilgreindu muni heldur hafi hann einungis afhent borginni þá til geymslu. Maður að nafni Guðmundur Alfreðsson bar fyrir dómi að hann hefði verið viðstaddur þegar Jóhannes Kjarval gaf Reykjavíkurborg munina með munnlegri yfirlýsingu til Geirs Hallgrímssonar borgarstjóra. Í málinu voru lagðar fram dagbókarfærslur Guðmundar frá þessum tíma sem staðfestu frásögn hans. Í minnisblaði Baldurs Guðlaugssonar, sem starfaði þá sem héraðsdómslögmaður, frá 21. september 1982 var haft eftir Geir Hallgrímssyni að hann hefði verið sannfærður um að um gjöf hefði verið að ræða. Eftir uppkvaðningu í Héraðsdómi Reykjavíkur gaf Jón Halldór Gunnarsson sendibifreiðastjóri skýrslu fyrir dómi en hann aðstoðaði við flutning gagnanna 1968. Renndi framburður hans enn frekari stoðum undir að um gjöf hefði verið að ræða. Í niðurstöðu Hæstaréttar sagði að gögn málsins bentu eindregið til þess að ákvörðun Jóhannesar Kjarval um að afhenda Reykjavíkurborg þá muni sem um ræðir, hefði átt aðdraganda og mótast á nokkrum tíma, einkum eftir að borgin ákvað að reisa listasafn og sýningahús sem skyldi bera nafn listamannsins. Taldist því sannað að listamaðurinn hefði gefið borginni þá muni sem málið snerist um með munnlegri yfirlýsingu 7. nóvember 1968. Var kröfum erfingjanna því hafnað.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Bein útsending: Tekist á um þjóðaratkvæðagreiðsluna Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Sjá meira