Lífið

Dóp í rútunni hjá Snoop

MYND/AFP
MYND/AFP

Tveir voru handteknir í kjölfarið að lögreglan í Texes gerði leit í hljómleikarútu rapparans Snoop Dogg og fann þar eiturlyf.

Snoop og félagar voru á leiðinni til Dallas þegar rútan var stöðvuð við hefðbundið eftirlit lögreglunnar. Laganaverðir runnu á lyktina og leituðu í bifreiðinni í kjölfarið og það var þá sem hún fann einhver grömm af maríjúna.

Ethan Calhoun og Kevin Barkey sem eru hluti af fylgdarliði Snoop hafa játað að hafa átt maríjúana og bíða nú ákæru.

Sjálfur var Snoop Dogg, sem heitir raunverulega Cordozar Calvin Broadus, handtekinn með maríjúana á flugvelli í Kaliforníu fyrir ári síðan.

Árið 1990 var rapparinn sakfelldur fyrir að hafa kókaín í fórum sínum.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.