Lestarkönnunartillaga samþykkt í fjarveru borgarstjóra 27. mars 2008 14:34 MYND/GVA
Borgarráð sameinaðist í dag um tillögu þar sem ákveðið var að kanna fýsileika þess að koma á lestarsamgöngum milli miðborgar Reykjavíkur og Keflavíkur annars vegar og léttlestarsamgöngur innan Reykjavíkur hins vegar. Tillagan var samþykkt í fjarveru Ólafs F. Magnússonar borgarstjóra en hann hefur lýst yfir efasemdum um að lestarsamgöngur séu raunhæfur kostur. Fram kemur í tilkynningu frá Degi B. Eggertssyni, oddvita Samfylkingarinnar í borgarstjórn, að minnihlutinn hafi lagt fram tillögu þessa efnis. Það var gert í framhaldi að hugmyndasamkeppni um skipulag Vatnsmýrarinnar. Þeirri tilögu var vísað til umhverfis- og samgönguráðs borgarinnar og í kjölfarið lögðu borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokksins fram með nánast samhljóða tillögu í eigin nafni á síðasta fundi borgarráðs, 13. mars. Henni var frestað fyrir páska að beiðni borgarstjóra. Á fundinum í dag var hins vegar ákveðið að sameinast um eina tillögu. Hún gerir ráð fyrir að umhverfis- og samgöngusvið kanni hagkvæmni og fýsileika þess að koma á lestarsamgöngum milli Keflavíkurflugvallar og miðborgarinnar annars vegar og léttlestarkerfis innan borgarinnar hins vegar. Er þar meðal annars vísað til breytinga á eldsneytisverði í heiminum, þéttingar byggðar, umhverfisþátta og áherslu á nýtingu innlendra orkugjafa. „Við úttektina verði endurskoðaðar og uppfærðar fyrri úttektir sem unnar hafa verið um lestarsamgöngur á vegum borgarinnar og fjárhags-, umhverfis- og skipulagsþættir greindir. Ennfemur verði lagðar fram upplýsingar um kostnað vegna rekstrar lesta milli Reykjavíkur/Keflavíkur og rekstrar léttlesta á höfuðborgarsvæðinu. Úttektin verði unnin í samvinnu við skipulags- og byggingarsvið Reykjavíkurborgar og samgönguyfirvöld í landinu. Samráð skal haft við Orkuveitu Reykjavíkur," segir enn fremur í tillögunni. Er borgarráð reiðubúið að leggja allt að tíu milljónir til þessa verkefnis að því tilskyldu að það verði kostað til helminga af ríki og borg. Umhverfis- og samgöngusvið á að skila til borgarráðs ítarlegri verkefnalýsingu og kostnaðaráætlun vegna verksins eigi síðar en 1. júní. Efaðist um að lestarsamgöngur væru raunhæfur kostur Athygli vekur að Ólafur F. Magnússon var fjarverandi þegar tillagan var samþykkt en hann er nú í fríi. Í lok febrúar þegar umræðan um lestarsamgöngur kom upp lýsti hann því yfir á borgarstjórnarfundi að það kæmi sér verulega á óvart ef tillögur um lestarsamgöngur, sem fengið hefðu hraklega meðferð í umræðum fyrir nokkrum árum, fengju betri meðferð nú. Það væri gífurlega dýr kostur og hann efaðist um að lestarsamgöngur væru raunhæfur kostur.
Mest lesið Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Olíuborunum á Grænlandi frestað eftir viðræður við stjórnvöld Erlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira