Svör ráðherra lýsa sérkennilegri afstöðu til menntunar 27. mars 2008 12:13
Svör Árna Mathiesen til umboðsmanns Alþingis lýsa heldur sérkennilegri afstöðu fjármálaráðherra til menntunar, rannsókna og háskólakennslu á 21. öld, segir Pétur Dam Leifsson, einn af umsækjendum um stöðu héraðsdómara á Norðurlandi. Pétur Dam Leifsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands, og Guðmundur Kristjánsson hæstaréttarlögmaður sendu í janúar formlega kvörtun til umboðsmanns alþingis vegna ákvörðunar Árna Mathiesens, setts dómsmálaráðherra, að skipa Þorstein Davíðsson dómara við héraðsdóm Norðurlands eystra. Fimm sóttu um stöðuna og voru þrír taldir mjög vel hæfir af dómnefnd og voru Pétur og Guðmundur báðir í þeim hópi. Þorsteinn, sem fékk starfið, var metinn tveimur flokkum neðar. Árni Mathiesen gekk því þvert gegn niðurstöðu nefndarinnar. Dómnefndin og Dómarafélag Íslands gagnrýndu skipanina harkalega. Stöð 2 sagði frá svörum Árna við spurningum umboðsmanns í fréttum í gær. Kjarninn í þeim er að hann telur dómnefndina vanmeta starf Þorsteins sem aðstoðarmanns dómsmálaráðherra. Hann tekur til þess að þrír umsækjendur hafi útskrifast um svipað leyti og allir verið aðstoðarmenn dómara í upphafi starfsferilsins. Síðan fari einn í framhaldsnám og seinna í kennslu, annar haldi áfram sem aðstoðarmaður dómara en sá þriðji, Þorsteinn, verði aðstoðarmaður dómsmálaráðherra. Árni telur mikið misræmi í því að tveir hinir fyrrnefndu séu taldir mjög vel hæfir en Þorsteinn aðeins hæfur. Pétur Dam Leifsson sagði við fréttastofu að sér þætti álit Árna lýsa heldur sérkennilegri afstöðu ráðherrans til menntunnar, rannsókna og háskólakennslu á sviði lögfræði og þá einkum alþjóðalaga nú á 21. öld - svo ekki væri meira sagt.
Mest lesið Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Leavitt hættir hjá Trump Erlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent ICE-liðar fá rafmagnshanska Erlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Innlent Bíll við bíl á Snæfellsvegi Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Innlent Fleiri fréttir Angjelin Sterkaj laus úr haldi og sendur til Albaníu Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Sjá meira