Lífið

Austfirsku alparnir opnir í dag

Breki Logason skrifar
Hægt er að skella sér á skíði bæði fyrir norðan, austan og sunnan í dag.
Hægt er að skella sér á skíði bæði fyrir norðan, austan og sunnan í dag.

Skíðasvæðið í Oddsskarði hefur oft verið nefnt austfirsku alparnir. Þeir jóðla af glæsileika í dag að sögn Dagfinns S Ómarssonar hjá skíðamiðstöðinni.

„Það er opið í byrjendalyftu og einni lyftu frá kl.11:00 til 16:00. Það er góður snjór og skíðafærið frábært, troðinn þurr snjór. Það er hjá okkur hægur vindur og -8°c og heiðskírt. Síðustu viku hefur snjóað um einn metra og eru aðstæður allar þær bestu," segir Dagfinnur.

Viggó Jónsson hjá skíðasvæðinu í Tindastóli segir að einnig sé galopið hjá sér í dag. „Það er frábært veður, níu stiga frost, suðaustan þrír metrar og heiðskírt," segir Viggó sem nýlega hefur komið upp nýju snjóframleiðslukerfi í fjallinu.

„Það hefur gengið alveg rosalega vel og við værum ekki með opið nema þess nyti við," segir Viggó sem er með fjórar vélar á svæðinu.

Ein vél getur framleitt við bestu aðstæður allt að 80 rúmmetra af snjó á klukkutíma og miðað við fjölda véla í Tindastóli er hægt að framleiða um 320 rúmmetra á klukkutíma. „Það er ágætis skafl," segir Viggó og hlær.

Fyrir þá á höfuðborgarsvæðinu sem þyrstir í að renna sér niður brekku þá er einnig opið í Bláfjöllum. Þar er logn, fjögurra stiga frost og logn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.