Áhersla lögð á að vinna gegn heimilisofbeldi 12. desember 2008 11:27 Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins.
Unnið er að skipulagsbreytingum hjá embætti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu með það að leiðarljósi að leggja áherslu á rannsóknir heimilisofbeldismála. ,,Ég geri ráð fyrir því að kynferðisbrotamálum og heimilisofbeldismálum verði sinnt í einni og sömu deildinni til þess að tryggja að þessi mikilvægu mál fái þann forgang og athygli sem nauðsynlegt er," sagði Stefán Eiríksson lögreglustjóri höfuðborgarsvæðisins í samtali við Vísi. Réttmæt gagnrýni Lögreglan og raunar réttarkerfið í heild hefur á liðnum árum verið gagnrýnt fyrir frammistöðu sína vegna meðferðar kynferðisbrotamála. Þessi gagnrýni hefur að mörgu leyti verið réttmæt, að mati Stefáns. Við stofnun embættisins var á ákveðið að setja laggirnar sérstaka rannsóknardeild sem hefði það hlutverk að rannsaka kynferðisbrot. Stefán telur tekist hafi að auka skilvirkni rannsókna slíkra mála og auka tiltrú almennings og þolenda kynferðisbrota á getu lögreglu í málaflokknum.Auka sérþekkingu innan lögreglunnar Markmið með skipulagsbreytingunum núna að koma í veg fyrir áframhaldandi heimilisofbeldi. ,,Við ætlum að gera það sama og við gerðum með kynferðisbrotamál og byggja upp sérþekkingu innan lögreglunnar í heimilisofbeldismálum sem er nauðsynleg til þess að auka gæði og skilvirkni við rannsókn þessara mála," sagði Stefán. Til stendur að kynna Birni Bjarnasyni, dómsmálaráðherra, tillögurnar um næstu áramót og að breytingar taki þegar í gildi.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira