Vona að alþingismenn muni það sem skiptir máli 12. desember 2008 20:11
Við vonum að kreppan verði ekki til þess að Alþingi gleymi því sem skiptir máli, segja foreldrar mjög sjónskerts fjögurra mánaða drengs. Þau bíða þess að Alþingi afgreiði frumvarp sem tryggir að drengurinn þeirra fái viðeigandi meðferð. Sindri fæddist 11. ágúst síðastliðinn. Morgunin eftir var hann greindur með meðfædd ský á augasteinum. Sjúkdómurinn lýsir sér þannig að ský myndast yfir augasteinum þannig að mismikið ljós kemst í gegn. Að auki er hann með lítil augu. Þegar Sindri var tveggja mánaða voru augasteinarnir fjarlægðir á sjúkrahúsi í Lundúnum. Eftir það fékk hann gleraugu sem eru plús 20. Víðast hvar á Norðurlöndunum hafa gleraugu þó vikið fyrir linsum og þar heyrir reyndar til undantekninga að gleraugu séu sett á ungabörn eftir að augasteinar eru fjarlægðir. Reynslan sýnir líka að ung börn sem fá linsur í stað gleraugna, þroska oftast með sér betra sjónsvið. Lengi vel var ekki til nauðsynlegur búnaður hér á landi til að útbúa þessar linsur. Eftir að Kompás fjallaði um þessi mál gaf VÍS Sjónstöð Íslands fé til að kaupa linsumátunarvél árið 2006. Vélin lá ónotuð í kössum í marga mánuði en var tekin að hluta í notkun fyrir um ári . Meiri mannskap og betri aðstöðu þarf til að taka vélina í fulla notkun. Í dag hóf sjóntækjafræðingur störf hjá Sjónstöðinni. Starfsfólk þar áætlar að hægt verði að hefja linsumátun upp úr áramótum og bindur miklar vonir við frumvarp um nýja þjónustumiðstöð fyrir blinda, sjónskerta og daufblinda. Foreldrar Sindra hafa ekki fengið nein loforð um hversu mikla sjón Sindri mun fá í framtíðinni en þau eru engu að síður bjartsýn
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ Innlent Fleiri fréttir Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Á morgun mega hommar gefa blóð Sjá meira