Segir matvælaverð hjá sér hugsanlega tvöfaldast 1. apríl 2008 16:40 Ólafur Johnson er lengst til hægri á myndinni. „
Innflutningsaðilar geta illa staðið á móti þessum erlendu verðhækkunum sem eru að tröllríða heiminum," sagði Ólafur Johnson, framkvæmdastjóri Ó. Johnson & Kaaber. „Hækkanir á erlendum mörkuðum hófust í október og um svipað leyti fór gengið að síga líka. Menn brugðust ekki mikið við þessu þá og tóku hækkanirnar bara á sig. Hjá mínu fyrirtæki hækkuðum við verðið í kringum áramót í kjölfar hækkana hjá birgjum og eftir þetta hefur gengið verið í frjálsu falli." Ólafur sagði enn fremur að hækkanir væru ekki farnar að skila sér í verslanirnar nema að nokkru leyti: „Ég held að fæstir innflytjendur séu enn búnir að taka inn að fullu hjá sér þessar mestu hækkanir á hrávöru erlendis. Erlent innkaupsverð á hveiti hefur farið 50 − 70% upp, hrísgrjón 60% og munu hækka, hrákaffi 40% og sulta og ávextir um 30%. Þetta eru bara verðhækkanirnar erlendis og ofan á þær leggst svo fall gengisins sem hefur verið 38% síðan í október auk annarra kostnaðarhækkana. Ef heldur áfram sem horfir get ég ímyndað mér að einhver hluti af innfluttum matvælum hjá mér tvöfaldist í verði frá október síðastliðnum fram í október á þessu ári," sagði Ólafur. Hann telur óhjákvæmilegt að ríkisstjórnin beiti sér af alefli fyrir bættum hag almennings og fyrirtækja landsins. „Ég held að hún verði að gera það, það er engin spurning. Það þarf að taka á tolla- og innflutningsmálum, hvort sem það er kjöt eða annar innflutningur. Nú er brýnast að halda fyrirtækjum í rekstri og að ríkisstjórnin styðji bankana til að halda hagkerfinu gangandi," sagði Ólafur að lokum.
Mest lesið Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Innlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent Allt að átján stiga hiti í dag Veður Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Innlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Fleiri fréttir Ný PISA-könnun: Enn versnar staða íslenskra unglinga Ógnandi, vopnaður hnífi og í annarlegu ástandi Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Sjá meira