Fjölmenni á nefndafundi um efnahagsmál í morgun 1. apríl 2008 12:36 MYND/Lárus
Fjölmenni var á sameiginlegum fundi fjárlaganefndar og og efnahags- og skattanefndar Alþingis í morgun þar sem rædd var staða efnahagsmála og horfur í ríkisfjármálum. Fjárlaganefnd bíður eftir nýrri þjóðhagsspá og Peningamálum áður en skoðað verður hvort endurskoða þurfi fjárlög. „Þetta var 30 manna fundur og á hann komu fulltrúar ASÍ og Samtaka atvinnulífsins, greiningadeilda stóru viðskiptabankanna þriggja ásamt fulltrúum Seðlabankans, Fjármálaeftirlitsins og fjármálaráðuneytisins," segir Gunnar Svavarsson, formaður fjárlaganefndar. „Það voru ólík sjónarmið uppi en menn eru þó sammála um það að það þurfi að efla trúverðugleika íslenska hagkerfisins," segir Gunnar og bætir við að það skipti miklu máli óháð því hvaða aðgerða menn horfi til í efnahagsmálum. „Menn telja að ríkið geti gert ýmislegt og það er bæði tengt tekju- og gjaldahliðinni og sömuleiðis töluðu menn um að efla gjaldeyrisforða Seðlabankans," segir Gunnar. Þá hafi verið bent á frekari útfærslur á reglum Seðlabankans gagnvart bönkunum í landinu. „Menn sjá fram á það að það dragi úr viðskiptahallanum og einkaneyslan minnki en hins vegar vita menn ekki hversu stór breytingin verður," segir Gunnar enn fremur. Skiptar skoðanir um Helguvíkurálver Þá segir Gunnar að fundargestir hafi skipst í tvo hópa gagnvart auknum fjárfestingum í stóriðnaði og vísar hann þar til uppbyggingar álvers í Helguvík. Þar hafi meðal annars verið horft til innspýtingar fjármagns og umhverfissjónarmiða. Þá óttist sumir þensluhvetjandi áhrif framkvæmdanna. Aðspurður hvort staða efnhagsmála kalli á endurskoðun fjárlaga fyrir þetta ár segir Gunnar að fjárlaganefnd bíði eftir tveimur skýrslum sem koma á næstunni. Þar er annars vegar um að ræða ný Peningamál Seðlabankans sem koma út 10. apríl og endurskoðaða þjóðahagsspá fjármálaráðuneytisins sem lítur dagsins ljós 15. apríl. „Þetta eru tveir stórir dagar fyrir okkur og við munum ekki fara fram með neitt sem tengist þessu fyrr en þessir hlutir eru ljósir," segir Gunnar. Hann minnir einnig á að formenn stjórnarflokkanna hafi boðað að verið sé að fara yfir ákveðnar aðgerðir í efnahagsmálum og það komi líka til skoðunar í þessu samhengi. Gunnar segir fundinn hafa verið góðan og til þess að efla aðra samræðu. „Ég tel að það séu bjartari tímar fram undan en verið hefur á umliðnum dögum og vikum. Við verðum vera samstíga í því að tala upp trúverðugleika hagkerfisins," segir Gunnar.
Mest lesið Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Innlent Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Innlent Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Innlent Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Innlent Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Innlent Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Innlent Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Innlent Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Innlent Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Innlent Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Innlent Fleiri fréttir Féllust á að gera ekki lítið úr tilfinningum hinna eða ræða persónuleg mál Tjörn, skautasvell, íbúðir og útivistarsvæði rísi á gjörbreyttu svæði Flugöryggismál að Reykjavík nýtist sem varavöllur Airbus Samfylking og Sjálfstæðisflokkur í samstarf í Suðurnesjabæ Icelandair og flugmenn komnir í fjölmiðlabann Kynntu nýjan meirihluta í Hafnarfirði Ferðamenn stundum slegið tvær flugur í einu höggi Nýr bæjarstjóri, morðhótanir og afar samrýmdar systur Þórður nýr bæjarstjóri Hafnarfjarðar Bein útsending: Kynna meirihlutasáttmála og nýjan bæjarstjóra Hafnarfjarðar Ari ekkert heyrt í Hildi síðan á föstudag Lögðu hald á 9mm hálfsjálfvirka skammbyssu Mikil spenna í veðurkortunum Þriggja bíla árekstur á Reykjanesbraut og miklar tafir Taldi kosningarnar ógildar vegna ógilds kjörseðils Yfir hundrað óboðnir gestir í stúdentsveislu Telja frumvarp um sjókvíaeldi stangast á við gildandi lög Vakta hafsvæðið með ESB-dróna frá Hornafirði Sannfærður um að finna eitthvað spennandi að gera Heiða greinir frá morðhótunum Selja húsnæðið vegna andstöðu íbúa Komu vélarvana fiskibát til hjálpar Sátt um að klára ESB-umræðu í tæka tíð Sátt á þingi um þjóðaratkvæði og beðið eftir fréttum úr borginni Bein útsending: Borgarfulltrúar kveðja „Af hverju tekur þetta svona langan tíma?“ Afbókuðu hantaveiruskipið í maí en enn væntanlegt í ágúst Hoppandi reiðir vegna framgöngu Hallgríms í þætti um Davíð Hafi ekki hætt þrátt fyrir ítrekuð högg frá konunni Matvælastofnun kærir hótanir til lögreglu Sjá meira