Hæstiréttur staðfestir dauð og ómerk ummæli um Magnús 11. desember 2008 17:13 Magnús Ragnarsson
Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms í meiðyrðarmáli Magnúsar Ragnarssonar fyrrum sjónvarpsstjóra Skjás eins gegn 365 miðlum ehf. Ummælin birtust í tveimur blöðum félagsins, DV og Fréttablaðinu undir fyrirsögnunum „Maggi glæpur" og „Geðþekkur geðsjúklingur". 365 miðlar ehf skutu málinu til Hæstaréttar þann 23.janúar 2008. Krafðist félagið sýknu en Magnús krafðist staðfestingar héraðsdóms sem hafði dæmt ummælin dauð og ómerk. Ummælin sem um ræðir eru: 1. „Á sama tíma er allt í tómu tjóni í einkalífi yfirmanna stöðvarinnar, þeirra Magnúsar Ragnarssonar og......" 2. ......„gengur yfirmönnum stöðvarinnar ill að fóta sig í einkalífinu." 3. „Maggi glæpur" 4. „Geðþekkur geðsjúklingur" Í dómi Hæstaréttar segir að „einkalíf manna, heimili og fjölskylda njóti friðhelgi samkvæmt 71. gr. stjórnarskrárinnar. Í frásögn af hjúskaparslitum einum og sér felst þó ekki brot á þeirri friðhelgi." Þar segir hinsvegar að séu ummælin lesin í samhengi við meginmál fréttarinnar þyki þau fela í sér ærumeiðandi aðdróttanir. „Að þessu athuguðu en að öðru leyti með vísan til forsendna hins áfrýjaða dóms verður niðurstaða hans um ómerkingu framangreindra ummæla og bótaábyrgð áfrýjanda staðfest. Þegar litið er til þeirra sjónarmiða sem vísað er til í héraðsdómi og fordæma Hæstaréttar er fjárhæð miskabóta hæfilega ákveðin 600.000 krónur," segir í dómnum. Þá er staðfest sú niðurstaða héraðsdóms að áfrýjanda verði gert að standa straum af birtingu dómsins með þeim hætti sem þar er getið, þó þannig að rétt þykir að miða við tvær birtingar. Verður áfrýjandi því dæmdur til að greiða stefnda 240.000 krónur til að standa straum af þeim. Ákvæði héraðsdóms um málskostnað er staðfest. Áfrýjandi verður dæmdur til að greiða stefnda 300.000 krónur í málskostnað fyrir Hæstarétti. Hér má sjá dóma Hæstaréttar og Hérðasdóms.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira