Vilja tafarlausa rannsókn á falli Glitnis 11. desember 2008 14:42
Um 40 til 50 manns komu saman í dag fyrir utan húsnæði Ríkissaksóknara þar sem yfirtöku ríkisins á Glitni á sínum tíma var mótmælt. Að sama tilefni var lögð fram krafa frá Röddum fólksins þar sem Ríkissaksóknari er beðinn um tafarlausa rannsókn á falli Glitnis á grundvelli tíunda kafla hegningarlaga. Tilkynning hópsins er svohljóðandi: „Ljóst er að þrátt fyrir þrálátan orðróm um meinta refsiverða háttsemi þáttakenda í falli Glitnis og setningu neyðarlaga í kjölfarið hefur dómsvaldið enn ekki hafist handa um rannsókn málsatvika. Á síðustu dögum hefur komið fram að endurskoðendur stærstu hluthafa Glitnis hafa mánuðum saman verið í fullri vinnu við að endurskoða sjálfa sig án vitneskju yfirstjórnar Fjármálaeftirlitsins og bankamálaráðherra um meint ólögmæt hagsmunatengsl. Þá hefur einnig komið fram að formann bankastjórnar Seðlabankans og forsætisráðherra greinir á um grundvallaratriði í undanfara Glitnis og fjármálaráðherra er uppvís af missögnum og grundvallarþekkingarleysi í aðkomu að málinu. Í þessari grafalvarlegu stöðu, þar sem sjálfurm grundvelli réttarríkisins er ógnað af þeim síst skyldu, hefur dómsvaldið brugðist skyldum sínum. Ljóst er að dómsmálaráðherra hefur sýnt vítavert sinnuleysi í viðbrögðum við einum stærsta vanda sem dunið hefur yfir þjóðina. Dómsmálaráðherra ber því að axla ábyrgð og segja tafarlaust af sér." Uppákoman í dag er liður í aðgerðum sem boðaðar hafa verið af þeim sem staðið hafa fyrir mótmælunum á Austurvelli undanfarna laugardaga. Næstkomandi laugardag verður breyting gerð á því í stað hefðbundinna ræðuhalda er áformað að fundargestir lúti höfði í 17 mínútna þagnarstund.
Mest lesið Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Innlent SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Innlent Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Innlent Minningarstundir vegna andlátanna Innlent Öll hin látnu um og undir tvítugu Innlent Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Innlent „Ef ég hefði ekki farið upp á heilsugæslu þá hefði ég ekki fengið heilablóðfall“ Lífið „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Innlent Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Innlent Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Innlent Fleiri fréttir Minningarstundir vegna andlátanna Þorgerður sinnir starfi sveitarstjóra í eitt ár Andarnefja í andarslitrunum á Djúpavogi Báðar fylkingar eyddu milljónum í samfélagsmiðlaauglýsingar Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Byrjað að leggja Borgarlínu við Nauthólsveg Svekktir og reiðir stjórnendur komu saman við Ráðhúsið Komugjald lagt á: „Þetta er auðvitað ekkert annað en skattlagning“ SÁÁ missir forstjóra og yfirlækni Norðausturland fær loks langþráðan veg Tjón vegna skemmdarverka hlaupi á milljónum Rætt við vitni að banaslysinu og eldri borgarar ósáttir með skattahækkun Fleiri bílar á vettvangi og hraðakstur til skoðunar Rún frá Veitum til Þorgerðar Katrínar Einn fluttur á slysadeild eftir eld í Holtagörðum Hlaup af þessari stærðargráðu vel þekkt í Múlakvísl Kviknaði í jeppa á Reykjanesbraut Leggja til að Evrópusambandsumsóknin verði formlega dregin til baka Segir af og frá að hann hafi veitt stórfé í Brexit-baráttuna Sakborningur í Kársnesmáli sóttur til Spánar Sinntu hávaðatilkynningum í heimahúsum „Engin orð ná utan um slíkan missi“ Enn óljóst hvað verður um umsóknina Ungum Pólverja best treyst til forystu í Langanesbyggð Þurfi að hækka laun og fjölga frídögum Öll hin látnu um og undir tvítugu „Við segjum ekki bless, við segjum takk“ Síðasti kvöldfréttatími Sýnar „Ríkið á stóra sök á þessu“ Líka slæmar fréttir fyrir Rúv Sjá meira