Mariah Carey hefur samkvæmt slúðurpressunni vestra trúlofast kærasta sínum, Nick Cannon. Orðrómur um yfirvofandi hjónaband kviknaði þegar söngkonan mætti á Tribeca kvikmyndahátíðina í New York með risavaxinn trúlofunarhring á fingri og kærastann í eftirdragi.
Viðstaddir sögðu þau ekki hafa séð sólina fyrir hvort öðru, en ekki er víst að Carey verði ánægð með manninn áfram. Hringurinn á fingri Carey er nefnilega alveg nákvæmlega eins og trúlofunarhringur Cannons og hans fyrrverandi, Victorias Secret fyrirsætunni Selitu Banks.
