Lífið

DeGeneres tárast vegna hommafóbíu

Gamanleikkonan og spjallþáttastjórnandinn Ellen DeGeneres gerði hlé á dagskrá þáttar síns á föstudag til að ræða málefni sem stendur henni nærri, hommafóbíu. Leikkonan átti erfitt með að halda aftur af tárunum þegar hún sagði frá Lawrence "Larry" King, 15 ára gömlum dreng sem var myrtur 12. febrúar síðastliðinn vegna þess að hann var samkynhneigður.

Fjórtán ára gamall drengur, Brandon McInerney, hefur verið ákærður fyrir að skjóta King í höfuðið í skólastofu fullri af nemendum í skóla í Oxnard í Kaliforníu.

"Ég myndi vilja byrja á því að vekja athygli á því hversu oft er gert grín á kostnað samkynhneigðra í kvikmyndum," sagði DeGeneres í þættinum sem dregur að um 2,5 milljón áhorfenda.

"Þess konar skilaboð, að hlæja að einhverjum af því þeir eru samkynhneigðir, er bara byrjunin. Það byrjar því, og síðan kemur árás með orðum, þá kemur líkamlegt áreiti eða misnotkun, og í þessu tilfelli var það Brandon sem drap ungan dreng eins og Larry."

Nokkrum dögum áður en King var myrtur hafði hann sagt morðingja sínum að hann kynni mjög vel við hann og vildi vera meiri vinur hans. Vitni segja að McInerney hafi strítt King á að vera hommi. E Online segir að lögregla á staðnum hafi ekki rætt ástæðuna fyrir skotárásinni, en saksóknarar hafi ákært McInerney fyrir að fremja hatursglæp. Almennt er talað um að sá glæpur tengist kynhneigð King.

"Larry var ekki annars flokks borgari," sagði DeGeneres; "Ég er ekki annars flokks borgari. Það er allt í lagi að vera samkynhneigður."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.