ESB yfirlýsing gæti hjálpað efnahagslegum stöðugleika 2. mars 2008 15:55 Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingar.
Yfirlýsing um að Ísland stefndi að aðild í Evrópusambandinu gæti umheiminum fyrirheit um hver stefna landsins væri á næstu tíu árum og gæti hjálpað til að koma efnahagslegum stöðuleika á. Þetta sagði Árni Páll Árnason þingmaður Samfylkingarinnar í Silfri Egils í dag. Hann benti á að þegar önnurlönd sem sótt hefðu um aðild að sambandinu hefðu gefið út yfirlýsingu þess efnis, hefði það haft áhrif í þá veru. Steingrímur J. Sigfússon þingmaður VG var þó ekki sammála Árna og benti á að sú hefði ekki verið raunin í Eistlandi. Árni sagði nauðsynlegt að við settum okkur markmið, annars héldi óstöðugleikinn áfram. Mikilvægt væri þó að missa umræðuna ekki út í að tala niður um þann grunn sem við hefðum. Íslenskt samfélag mætti ekki við því að stórir bankar yrðu fyrir áfalli. Steingrímur sagðist telja að lítil stemning værir fyrir því að bjarga bönkunum eða yfirmönnum þeirra. Hann sagði að Ísland væri eitt skuldugasta vestræna hagkerfið þó ríkissjóður væri sterkur. Hann tók undir að umræðan um efnahagslegan vanda þjóðarinnar hefði sálrænar afleiðingar. Einar K. Guðfinnsson landbúnaðar- og sjávarútvegsráðherra var einnig sammála því og benti á að íslenskar fjármálastofnanir stæðust álagsprófanir og mikilvægt væri að koma því til skila bæði til almennings og út fyrir landsteinana. Skuldatryggingarálagið væri ekki í samræmi við forsendur. Árni gagnrýndi fyrirætlanir um að reisa álver í Helguvík og sagði að stýrivextir myndu þá ekki nást niður fyrir 7-8 prósent á næstu árum. Ekki dygði að horfa einungis til skammtímahagsmuni í þeim efnum. Slíkt ýtti undir vantrú á grundvallarforsendum sem íslensk efnahagsstefna byggði á. Einar sagði að mikilvægt væri að vera með áform um aðgerðir og verkefni. Ekki væri þó pláss fyrir tvær stóriðjuframkvæmdir í einu. Steingrímur sagði fara um sig hroll við tilhugsunina um að stefna í stórframkvæmdir nú það væri áskrift á áframhaldandi viðskiptahalla; „Það verður að renna af okkur Egill," sagði hann í þættinum. Hann bætti við að umtalsverð mistök hefðu verið gerð í hagstjórn sem þyrfti að leiðrétta; „Það verður erfitt, en það tekst."
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira