Innlent

Undir áhrifum fíkniefna á stolnum bíl

Lögreglan á Suðurnesjum handtók í nótt ökumann vegna gruns um að hann væri undir áhrifum ólöglegra lyfja en hann er einnig grunaður um að hafa stolið ökutækinu.

Þá stöðvaði lögreglan sjö ökumenn fyrir of hraðan akstur í gærkvöld og mældist sá er hraðast ók á 70 kíómetra hraða á á Norðurvöllum í Reykjanesbæ, en þar er 30 kílómetra hámarkshraði. Viðkomandi var færður á lögreglustöð þar sem hann var sviptur ökuréttindum til bráðabirgða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×