Guðni varaði við hvalveiðum þegar hann var ráðherra 21. maí 2008 11:19 MYND/GVa
Guðni Ágústsson hefur gagnrýnt afstöðu Samfylkingarinnar í hvalveiðimálinu harðlega. Hann sagði í fréttum RÚV í gær að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hafi gert Ísland að athlægi á alþjóðavettvangi með yfirlýsingu sinni á dögunum. Ingibjörg hefur sagt að allir ráðherrar flokks síns leggist gegn áframhaldandi hvalveiðum í atvinnuskyni þrátt fyrir að sjávarútvegsráðherra hafi heimilað veiðarnar. Guðni sagði að hans flokkur hafi stutt hvalveiðar þegar Framsóknarflokkurinn var í ríkisstjórn en í viðtali á RÚV árið 2006 sagðist hann hafa varað við veiðunum og sagt að menn yrðu að vera tilbúnir til að fórna minni hagsmunum fyrir meiri. Á heimasíðu Samfylkingarinnar rifja menn upp orð Guðna þegar hann var landbúnaðarráðherra en í desember árið 2006 sagðist hann í viðtali við RÚV hafa varað samráðherra sína við því að taka ákvörðun um hvalveiðar sem tekin var þá um haustið. Guðni segist hafa sagt félögum sínum í ríkisstjórn að „menn verði að vera tilbúnir til að fórna minni hagsmunum fyrir meiri". Þar átti hann við að markaðir fyrir íslenskar landbúnaðarvörur í Bandaríkjunum gætu skaðast vegna hvalveiðanna. Það kom raunar á daginn og ákvað Whole Foods verslunarkeðjan að hætta að hampa vörum sem íslenskum vegna hvalveiðanna. Í viðtalinu var Guðni spurður hvort hann vildi að hvalveiðum yrði hætt sagðist hann ekki ætla að fjalla um það í fjölmiðlum, heldur í ríkisstjórninni.
Mest lesið Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Innlent Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Innlent Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi Innlent Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Innlent Segir ljóst að málið verði Lindsay Clancy dýrkeypt Erlent Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Innlent Lögreglan í Kaupmannahöfn stendur í ströngu Erlent „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ Innlent Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Innlent Hátt í áttatíu eftirskjálftar Innlent Fleiri fréttir Áfall og tjón að missa skyndilega teljarann Vara við manni sem hafi óskað eftir persónuupplýsingum nemenda Óþarft að fara til Reykjavíkur til að hlaupa Bilun hjá Teya veldur löngum röðum Missti besta vin sinn á Krýsuvíkurvegi og son í umferðarslysi „Ég hafna þeirri fullyrðingu alfarið“ „Búningadjamm“ á Þjóðminjasafninu í dag Elti blóðugan brotaþola inn á lögreglustöðina Ólga innan SÁÁ og upprisa AfD Tveir handteknir í sérsveitaraðgerð á Akureyri Sjö fluttir á slysadeild eftir að bíl var ekið á tvo ljósastaura Hátt í áttatíu eftirskjálftar Handteknir eftir líkamsárás Kýld niður fjallið og hafi svo horft á formanninn ljúga í fjölmiðlum Jarðskjálfti í Brennisteinsfjöllum Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Enginn andvígur hvalveiðum Banna innfluttar dýraafurðir frá Brasilíu Skordýr í súpu skólabarna Sérsveitaraðgerð við heimahús á Akureyri Anna Lilja og Sæunn sýslumenn tímabundið Finnbjörn býður sig ekki aftur fram til forseta ASÍ Telja þjóðaratkvæðagreiðsluna hafa styrkt Samfylkinguna Hugsi yfir framlagi Kristrúnar Fella niður gatnagerðargjald vegna bílakjallara Næstum allar ábendingarnar um Áfram Ísland Segir borgina vinda ofan af „langvarandi rugli og vitleysu“ Myndband af banaslysinu í töluverðri dreifingu Verjendur fordæma boðaðar breytingar: „Stefnum í eitthvað fasista-, kommúnistalögregluríki“ Myndbönd af banaslysinu í dreifingu og kvartanir vegna þjóðaratkvæðagreiðslunnar Sjá meira