Innlent

Samgönguráðherra brýtur lög

Kristján Lúðvík Möller samgönguráðherra.
Kristján Lúðvík Möller samgönguráðherra.

Samgönguráðherra var óheimilt að þrengja hin almennu hæfisskilyrði laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins þegar hann auglýsti embætti vegamálastjóra og gerði þær kröfur að umsækjendur hefðu háskólapróf í verkfræði eða sambærilega menntun. Þetta segir Gestur Jónsson hæstaréttarlögmaður í samtali við Vísi. „Álitaefnið er hvort stjórnvald megi þrengja hæfisskilyrðin frá því sem lögin segja. Mín skoðun er að það megi ekki nema fyrir því séu sérstakar og knýjandi ástæður hverju sinni sem ég get ekki séð að séu fyrir hendi í þessu tilviki," sagði Gestur og vísaði til tveggja álita umboðsmanns Alþingis máli sínu til stuðnings. Í öðru þeirra segir að sá sem ráði í störf hjá ríkinu geti að jafnaði ekki í auglýsingu sett strangari skilyrði um almennt hæfi að því er varðar menntun, en þau sem fram koma í lögum, nema slíkt teldist málefnalegt og sýnt væri fram á ótvíræða nauðsyn þess að gera slíka kröfu.

„Auðvitað hefur stjórnvöldum verið heimilt að segja í auglýsingu að þau muni horfa sérstaklega til ákveðinna eiginleika umsækjenda en þau geta ekki breytt almennu hæfisskilyrðunum, ég tel það alveg óheimilt," sagði Gestur.

Lárentsínus Kristjánsson, formaður Lögmannafélags Íslands, sagði það undarlegt að ráðherra setti slíkt í auglýsingu um opinbert embætti og að stjórn félagsins hygðist taka málið til umræðu þegar á næsta fundi sínum. „Mér finnst þetta mjög óeðlilegt, þetta er ekki lögbundið hæfisskilyrði og ég tel að ráðherra þurfi að rökstyðja þetta sérstaklega," sagði hann.

Ekki náðist í Kristján L. Möller samgönguráðherra vegna málsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×