Innlent

Allir á skíðum á Siglufirði

Skíðasvæðið á Siglufirði
Skíðasvæðið á Siglufirði MYND/MARTEINN B HARALDSSON

Opið verður á skíðasvæðinu á Siglufirði frá klukkan 10:00 til 17:00 í dag að sögn Egils Rögnvaldssonar umsjónarmanns svæðisins. Hann segir sunnan golu á svæðinu og færið mjög gott. Nokkuð er af fólki á svæðinu og meðal annars nokkrir hópar úr Reykjavík sem skemmta sér konunglega að sögn Egils.

Egill segir veturinn hafa verið óvenju góðann en alls var opið í 16 daga í nóvember og í desember hefur verið opið í fjóra daga. „Við höfum verið einstaklega heppin með snjóalög og veðurfar, þetta hefur ekki verið svona í mörg ár," segir Egill.

Þrjár lyftur eru á svæðinu og nær lyftulínan tæpa 2 km að sögn Egils. „Þú ert að renna þér 2,3 km og fallhæðin er um 500 metrar."










Fleiri fréttir

Sjá meira


×