Hljómsveitin frumsýndi nýtt myndband við lagið Meira frelsi á mánudagskvöldið í Laugarásbíói við mikla kátínu viðstaddra.
„Miðað við örtröðina sem var fyrir utan, þá er ég að sjá að G-maðurinn þarf að fara full power í kvikmyndirnar,“ segir Egill ákveðinn en hann hefur hug á að leika í fyrstu íslensku hasarmyndinni.

En aftur að myndbandinu. Það sýnir einhvers konar aðdraganda að kvöldi úti á lífinu þar sem meðlimir sveitarinnar og fleiri koma við sögu.
„Þetta er kynþokkafyllsta myndband sem gert hefur verið,“ fullyrðir Egill. „Ég var búinn að lofa því og stend við það. Það fá allir fiðring sem sjá þetta, karlar og konur. Vanalega eru þessi vídeó nefnilega gerð sérstaklega fyrir rúnkara, en menn geta tyllt sér fyrir framan skjáinn með konunni og horft á þetta. Ég garantera „a good time“,“ segir Egill.

-shs