Erlent

Sigurganga Obama heldur áfram

Barack Obama.
Barack Obama.

Barack Obama bar sigur úr býtum á öllum svæðunum þremur sem héldu forkosningar í gær í baráttunni um útnefningu í bandarísku forkosningunum. Sigrar Obama í Mayryland, Virginíu og höfuðborginni Washington þýða að hann hefur nú nokkuð forskot á keppinaut sinn Hilllary Clinton.

Fréttastofa CNN segir að Obama hafi nú tryggt sér 1215 kjörmenn en Clinton 1190. Frambjóðandi demókrataflokksins þarf að tryggja sér 2025 kjörmenn til þess að hreppa tilnefninguna. John McCain átti gott kvöld hjá Repúblikönum en hann, lýkt og Obama sigraði á öllum stöðum.

Nokkru færri kjörmenn þarf til að tryggja sig í repúblikanaflokknum og hefur McCain nú 812 en hans eini keppinautur Mike Huckabee er með 217.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×