Sýknaðar af bótakröfu Geira á Goldfinger sev skrifar 4. apríl 2008 12:27 Elín Arnar, ristjóri Vikunnar.
Héraðsdómur Reykjavíkur sýknaði í dag Björk Eiðsdóttur og Elínu Arnar, blaðamann og ritstjóra Vikunnar, af skaðabótakröfu Ásgeirs Þórs Davíðssonar, betur þekkts sem Geira á Goldfinger, vegna umfjöllunar blaðsins um nektardans. Upprunarlega stefndi Ásgeir bæði þeim Björk og Elínu auk viðmælanda þeirra, Lovísu Sigmundsdóttur, fyrrverandi nektardansmeyjar, vegna meintra ærumeiðandi ummæla. Hann krafðist fimm milljóna í skaðabætur auk greiðslu málskostnaðar og 800 þúsund króna til að kosta birtingu dóms í málinu í þremur dagblöðum. Í viðtalinu í Vikunni lýsti Lovísa reynslu sinni af nektardansi, þar á meðal á Goldfinger. Hún sagði að þar væri stundað vændi með fullri vitund Ásgeirs og að mikill þrýstingur væri á dansstúlkurnar að stunda slíkt. Ásgeir féll þó frá kærunni á hendur Lovísu á þeim forsendum að ekki hefði verið rétt haft eftir henni. Fram kemur í niðurstöðu dómsins að Lovísa beri ábyrgð á ummælum sínum í viðtalinu en hins vegar hafi verið fallið frá kröfugerð á hendur henni. Af þessu leiði að blaðamaðurinn beri ekki ábyrgð sem „höfundur greinarinnar" og er ekki fallist á kröfugerð Ásgeirs um að tiltekin ummæli verði dæmd dauð og ómerk. Þá taldist blaðamamaðurinn hafa sett millifyrirsagnir fram á eðiliegan hátt án þess að fara út fyrir mörk tjáningarfrelsis. Enn fremur taldist Elín Arnar ekki hafa farið út fyrir mörk tjáningarfrelsisins með framsetningu efnisins á forsíðu og í efnisyfirliti. Komst dómurinn því að því að ekki væru skilyrði fyrir miskabótakröfu í málinu. Ekki hefði verið sýnt fram á að við framsetningu og kynningu á viðtalinu í Vikunni hefðu verið hafðar í frammi ærumeiðingar og aðdróttanir í garð Ásgeirs. Ber Ásgeiri að greiða konunum 600 þúsund krónur í málskostnað.
Mest lesið Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Innlent Klerkastjórnin missir tökin Erlent „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ Innlent Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna Innlent Kim fjölgar herskipum sínum Erlent Fjárfesta í menntamálum, fjarskiptum og jarðmálmum á Grænlandi Erlent „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Innlent Kílómetragjaldið hækkar Innlent Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi Innlent „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Innlent Fleiri fréttir Fleiri uppsagnir og óvissa um Borgarlínuna „Þetta er ekki til þess að auka mönnum bjartsýni“ Sendiherrann tekinn á teppið eftir færslu Trumps Kjörsókn jókst meira á landsbyggðinni en í borginni Sóttur til Póllands vegna manndráps á Kársnesi „Myndi einhverri annarri stétt vera boðið upp á svona rugl?“ „Vonandi birtist ekkert meira af myndum sem þessum“ Barnabótapotturinn stendur í stað en ýmis gjöld hækka Klórar sér í kollinum Dulin hækkun rökstudd með styttingu vinnuvikunnar Ríkisráðsfundur og styttist í setningu þings Skera niður Loftslags- og orkusjóð um rúma þrjá milljarða „Það hefur engin þjóð skattlagt sig til velsældar“ „Hvar ætla þau þá að spara?“ Hallalausa núllið eftir gamalli uppskrift Mikið útkall vegna eldamennsku á Álftanesi Rýnt í fjárlög Reykjavík í tíunda sæti yfir loftgæði Lokun á Hellisheiði og í Hvalfjarðargöngunum Fær að setja þessar fasteignir á sölu Kílómetragjaldið hækkar „Ég átti aldrei að lifa þetta af“ Ríkisútvarpið hafi stækkað á kostnað einkarekinna miðla Halla boðar til ríkisráðsfundar Daði kynnti fjárlagafrumvarp fyrir árið 2027 Erfiðara að sporna við innstreymi fíkniefna á Litla-Hrauni Tvær tilkynningar um eld „Merkilegt að sjá hvað aulaafturhaldinu dettur næst í hug“ Eftirförin endaði með hvelli „Svona er bara litróf mannlífsins“ Sjá meira