Dæmdir fyrir árás með rafstuðbyssu 4. apríl 2008 10:24
Héraðsdómur Reykjaness hefur dæmt tvo menn til fangelsisvistar, sem er að mestu skilorðbundin, fyrir að hafa ráðist á þriðja mann og meðal annars veitt honum stuð með rafstuðbyssu. Árásin átti sér stað í Garðinum í september 2006. Samkvæmt ákæru komu árásarmennirnir ásamt þriðja manni að heimili fórnarlambsins þar sem þeir töldu að fórnarlambið geymdi tvö mótorhjól sem hafði verið stolið. Ruddust þeir inn á heimili mannsins en þar var hann ekki heldur kona hans og tvær dætur. Eftir að hafa náð sambandi við fórnarlambið í gegnum síma kom í ljós að það var úti í bílskúr við heimili sitt og gengu árásarmennirnir að skúrnum og brutu hann upp með sleggju. Síðan réðust þeir á manninn með höggum og fangbrögðum og beitti annar árásarmannanna rafstuðbyssu á fórnarlambið. Í þessum átökum hlaut fórnarlambið mar og rispur víða á líkamanum samkvæmt ákæru. Annar árásarmannanna var einnig ákærður fyrir að hafa flutt inn til landsins rafstuðbyssuna og haft hana í fórum sínum. Út frá framburði vitna og mannanna sjálfra voru þeir sakfelldir en þriðji maðurinn sem var með þeim í för var sýknaður af ákæru um húsbrot þar sem ekki var talið sannað að hann hefði farið inn í hús fórnarlambsins. Segir í dómnum að ekkert í málinu hafi komið fram sem sýni að fórnarlambið hafi átt aðild að þjófnaði á mótorhjólunum. „Ákærðu hafa haldið því fram að þeir hafi ekki haft annað í hyggju en að endurheimta hjólin með friðsamlegum hætti. Hvað sem þessu líður er ljóst að framganga þeirra varð í reynd með allt öðrum brag," segir í dómnum. Árásarmennirnir tveir hafi gengið fram af miklu offorsi og hafi ekki skeytt neitt um það að ung börn húsráðenda yrðu vitni að ófyrirleitinni aðför. Var annar mannanna dæmdur í sex mánaða fangelsi, þar af fjóra skilorðsbundna, en hinn í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Þá var rafstuðbyssan gerð upptæk með dómnum.
Mest lesið Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Innlent Bein útsending: Almyrkvi á sólu Innlent Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Innlent Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Innlent Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Innlent Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Innlent Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Innlent Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Innlent Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Innlent Stríðsfangar barðir og beittir kynferðislegu ofbeldi Erlent Fleiri fréttir Stúlkan breytti frásögninni og Högna sleppt úr fangelsi Bíll við bíl á Snæfellsvegi Myndaveisla: Fjölmenni á Seltjarnarnesi Hvað á að gera við sólmyrkvagleraugun? Almyrkvinn allsráðandi í kvöldfréttum Sýnar Maðurinn sem fannst látinn var íslenskur Bein útsending: Almyrkvi á sólu Vona að skýin víki fyrir sólinni eins og þau gerðu í Texas Kristrún þurfi að stíga upp – Ólafur beri ábyrgð á Nei-inu Norðurljós, almyrkvi og stjörnuhrap allt sama daginn sé fallegur möguleiki „Alskýjaður almyrkvi er líka mögnuð og merkileg upplifun“ Loka Hvalfjarðargöngunum ef umferð verður of mikil Spennan magnast á almyrkvadegi Tveir handteknir erlendis vegna manndrápsins Klukkan hvað þarf að vera kominn út til að missa ekki af almyrkvanum? Einn fluttur á sjúkrahús og eldurinn slökktur Mannfjöldinn á Vestfjörðum margfaldast vegna almyrkvans Nóg af bílastæðum á Breiðavík en ekki á Rauðasandi og Bjargtöngum Viðbúnaður vegna eldsvoða í Grafarvogi Umferðarstýring gangi vel og ökumenn hlýði einstefnu Tólf hundruð ferðamenn fluttir í rútum á Snæfellsnes Vegfarendur gefi sér góðan tíma til ferðalaga í dag Tveir handteknir í tengslum við heimilisofbeldi Vaktin: Almyrkvi á sólu á Íslandi Ferðamenn koma til að spyrja eftir hundinum Maðurinn fundinn Fjórfalt fleiri lögreglumenn vakta Vestfirði Skemmdir á nýrri vatnsleiðslu til Eyja Leita svara við aldargamalli ráðgátu sólarinnar Gætu þurft að skila skyndibitaumbúðum Sjá meira