Virkari samkeppni en áður á olíumarkaði 7. ágúst 2007 12:03
Olíufélögin skiluðu öll lakari afkomu í ár en síðasta ár sem skýrist af harðri samkeppni að sögn Albert Þórs Magnússonar, framkvæmdarstjóra Atlantsolíu. Eldsneytisverð hækkaði um allt að þrjár krónur um helgina og kostar bensínlítrinn nú að jafnaði um 125 krónur hjá stóru olíufélgögunum þremur. Það voru Skeljungur og N1 sem riðu á vaðið á laugasrdag og hækkuðu eldsneytisverð á afgreiðslustöðvum sínum. Önnur fyrirtæki fylgdu svo í kjölfarið og hækkuðu verð hjá sér. Að jafnaði kostar bensínlítrinn um 125 krónur hjá stóru olíufélögunum þremur og verð á díselolíu er 124 krónur fyrir hvern lítra. Atlantsolía var síðast til að hækka eldsneytisverð og kostar lítrinn af bensíni hjá þeim nú 123,40 sem er 10 aurum meira en á útsölustöðum Orkunnar þar sem bensínið er ódýrast. Samkvæmt heimildum fréttastofu þá er afkoma olíufélaganna mun lakari í ár en fyrri ár sem leiðir líkum að því að samkeppni sé orðin mun harðari á þessum markaði en áður. Þeir stjórnendur olíufélaganna sem fréttastofa ræddi við taka undir þetta og segja að reksturinn sé orðinn mjög harður og að slegist sé um hvern viðskiptavin. Undir það tók Albert Þór Magnússon, framkvæmdarstjóri Atlantsolíu þegar fréttastofa ræddi við hann í morgun. Hann sagði af sem áður var hjá stóru olíufélögunum. Það skýri þó ekki verðhækkun á eldsneyti nú heldur sé það frekar svo að reynt sé að draga það eins lengi og unnt er að hækka verðið og að hækkunin sé í raun ekki næg til að mæta breytingum á gengi dollars. Enn séu stóru olíufélögin þó í samstarfi til að mynda í sambandi við birgðargeymslu og fleira í þeim dúr en nú lúti þeir sömu lögmálum markaðarins og Atlantsolía sem sé mikil bót frá því þegar olíusamráðið var og hét.
Mest lesið Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Innlent Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ Innlent Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Innlent Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Innlent Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Innlent Leysa upp nýja drónahersveit sem átti að læra af Úkraínumönnum Erlent Nord Stream skemmdarverkin: Handtekni ráðgefandi við gerð Hollywood-myndar um málið Erlent Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna Innlent Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Innlent Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Innlent Fleiri fréttir Afmælistónleikar Bylgjunnar á Menningarnótt Hætta við skólaakstur úr Suðurhlíðum þremur dögum fyrir skólabyrjun Kristín fyrsti sýslumaðurinn fyrir allt landið Viðurkennir að opinber gjöld hefðu getað hækkað minna „Ég get ekki svarað því“ Vitnisburðir: „Sannleikurinn er lyginni líkastur“ „Reykjavíkurflugvöllur er ekki að fara úr Vatnsmýri í náinni framtíð“ Sótti kíló af kókaíni á pósthúsið Uppselt í tíu kílómetra í keppnisflokki Sprengisandsstjóri og upplýsingafulltrúi Landsbankans til RÚV Örn verður framkvæmdastjóri HÍ Hefja útboðsferli fyrir þrjú þúsund fermetra höfuðstöðvar Snerti samstarfskonu á ósæmilegan hátt Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Segja markaðsbrest undirstrika tilgangsleysi hvalveiðanna Erlendir sérfræðingar meta fýsileika þess að sækja líkamsleifar Lúðvíks Ósammála um ágæti aðildarviðræðna: „Ég sé ekki fyrir mér að geta tekið húsnæðislán“ Heyrist í stelpunum þegar vatnið fer upp á miðja síðu Hnúfubakur á svamli skammt frá Reykjavík „Ég elska að vera hér“ Gestum komið fyrir á öðru hóteli Samfylkingin aftur stærst en ríkisstjórnin stendur í stað Kaup Icelandair og ný fylgiskönnun í kvöldfréttum Sýnar Bandbrjálaðist og hrækti á lögreglumann Bíll og mótorhjól skullu saman við Vaðlaheiðargöng Bandero kyrrsettur að kröfu Hvals hf. „Jafnvel betur undirbúin en margur hver“ „Breytist nánast ekki neitt ef við myndum ganga inn í ESB“ Bein útsending: Málþing um Biskupsmálið „Þetta er auðvitað snilldarmarkaðsbrella“ Sjá meira