Lífið

Fingraför tekin af Britney

Það er nóg að gera hjá Britney þessa dagana en hún mætti fyrir rétt fyrir örfáum dögum til að óska eftir því að fá að umgangast syni sína meira.
Það er nóg að gera hjá Britney þessa dagana en hún mætti fyrir rétt fyrir örfáum dögum til að óska eftir því að fá að umgangast syni sína meira. MYND/AP

Britney Spears mætti í gær á lögreglustöð í Los Angeles þar sem henni var birt kæra í tengslum við umferðaróhapp sem hún varð valdur að þann sjötta ágúst síðastliðinn. Spears er gefið að sök að hafa keyrt á kyrrstæðan bíl á bílastæði en látið sig síðan hverfa. Ljósmyndarar sem fylgdu henni eftir náðu myndum af atvikinu.

Lögreglumaðurinn Mike Lopez sagði í yfirlýsingu vegna málsins að Spears hafa mætt á lögreglustöðina klukkan níu á mánudagsmorgun og farið 45 mínútum seinna. Fingraför voru tekin auk þess sem söngkonan var mynduð. „Hún var mjög samvinnufús og gerði það sem ætlast var til af henni, sagði Lopez."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.