Segja að stjórnendur Icelandair beri alla ábyrgð á töfum 9. september 2007 16:14 MYND/365
Flugmenn segjast ekki bera ábyrgð á þeim töfum sem hafa orðið á millilandaflugi Icelandair í dag. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá Félagi íslenskra atvinnuflugmanna. Segja þeir ábyrgðina alfarið liggja hjá stjórnendum Icelandair. Flugi til Stokkhólms var aflýst í morgun og þá hefur einnig flugi til Minneapolis í Bandaríkjunum nú síðdegis verið aflýst. Fram kemur í yfirlýsingu Félags íslenskra atvinnuflugmanna að þeir hafi ítrekað reynt að ná samkomulagi við stjórnendur Icelandair Group um forgangsréttarákvæðið í kjarasamningum. Deilan snúst fyrst og fremst um að á sama tíma og 49 íslenskum flugmönnum sé sagt upp störfum notfæri móðurfyrirtækið sér leiguflugmenn til að manna vélar í rekstri á vegum fyrirtækisins. Með þessu sé gerð gróf aðför að réttindum íslensks launafólks og félagsmönnum. Flugmenn vísa allri ábyrgð vegna tafa á millilandaflugi á hendur stjórnenda Icelandair. Í yfirlýsingunni segir ennfremur að kröfur flugmanna sé ekki óeðlilegar og hindri ekki útrás félagsins. Þá harmar félagið þau óþægindi sem farþegar hafa orðið fyrir. Aflýsa þurfti til Stokkhólms í morgun og voru farþegar sendir með vél til Osló sem síðan hélt áfram til Stokkhólms. Þeir sem ekki komust með þá voru sendir með vél til Kaupmannahafnar í hádeginu. Nú síðdegis var aflýst flugi til Minneapolis í Bandaríkjunum og þá hafa orðið frekari tafir á vélum til og frá Íslandi. Guðjón Arngrímsson, upplýsingafulltrúi Icelandair, sagði í samtali við Vísi viðbúið að frekari tafir verði á millilandaflugi til og frá landsins í dag og á næstu dögum. Hvetur hann farþega að fylgjast vel með á heimasíðu félagsins.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira