Geiri á Goldfinger óttast ekki lögregluna Jón Hákon Halldórsson skrifar 8. júní 2007 13:18 Geiri segir að stelpurnar séu sáttar hjá sér
Ásgeir Davíðsson eigandi skemmtistaðarins Goldfinger óttast ekki afskipti lögreglunnar af rekstri staðarins. Hann segir að lögreglan rannsaki staðinn reglulega, meðal annars til að kanna aðbúnað þeirra stúlkna sem þar starfi. Hann fullyrðir að enginn eigandi skemmtistaðar sæti eins miklu eftirlit lögreglunnar og hann sjálfur. Hann gerir ekki ráð fyrir því að lögreglan fari í ítarlegri rannsókn á staðnum en verið hefur. Geir fullyrðir að engin ólögleg starfsemi eigi sér stað á Goldfinger og þvertekur fyrir að þar séu seld fíkniefni. Bæjarráð Kópavogs hefur samþykkt tillögu minnihlutans um að óska eftir því við lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins að embættið láti kanna hvort Lögreglusamþykkt Kópavogs sé framfylgt á skemmtistaðnum Goldfinger. Þá samþykkti bæjarráðið jafnframt bókun þar sem skorað er á félagsmálaráðuneytið og stofnanir þess að rannsaka hvort lög um atvinnuréttindi og ferðafrelsi kunni að hafa verið brotin í tengslum við rekstur næturklúbbsins. Guðríður Arnarsdóttir, oddviti Samfylkingarinnar í bæjarráði, sagði í samtali við Visir.is að bókanirnar væru lagðar fram vegna ummæla sem Ásgeir Davíðsson, eigandi Goldfingers lét falla í Íslandi í dag fyrir viku síðan. Þar hélt hann því fram að ferðafrelsi dansara á staðnum væri skert í átta klukkustundir eftir að vinnu þeirra lyki. Hann sagði jafnframt að konur dönsuðu einkadans í hálflokuðu rými og mótmælti því ekki að vændi væri stundað á skemmtistaðnum. Umsagnar lögreglustjóra höfuðborgarsvæðisins er beðið en hennar er von í næstu viku. Guðríður segir eðlilegt að lögreglan taki frumkvæði í meðferð málsins því augljóst sé að þær konur sem starfi á Goldfinger þori ekki að lýsa starfseminni þar og muni ekki þora að kæra. Guðríður vill láta rannsaka hvort mannréttindi séu brotin á konunum og þær seldar mansali. Ásgeir segir að hann skipti sér ekki af því hvað stelpurnar geri í frítíma sínum. Þær búi þar sem þær vilji og geri það sem þær vilji. Hann gerir þá kröfu til þeirra að þær hvíli sig í að minnsta kosti átta tíma á milli þess sem þær vinna. Hann skilur ekki að fólk geri athugasemdir við þessa kröfu. Áður fyrr hafi hann haft nokkuð stífari reglur fyrir stúlkurnar en þeim hafi verið breytt vegna mikillar andstöðu frá stúlkunum.
Mest lesið Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Innlent Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Innlent Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum Innlent „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Innlent „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Innlent Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss Innlent Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Innlent Handtekinn eftir að rottueitur fannst í barnamat Erlent Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Innlent Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Innlent Fleiri fréttir Brúnþari geti nýst til að græða sár og byggja bein Vilja meiri stuðning í atvinnumálum og íþróttahús fyrir Þórsara Stakk sofandi mann sem hann taldi hafa brotið á syni sínum Sinueldur á Kjalarnesi „Þitt vandamál er að þú skilur ekki stéttarfélög“ Gervigreindin gæti haft áhrif á ESB-atkvæðagreiðsluna Brotthvarf bandarískra hermanna veiki ekki NATO í Evrópu Eftirlit lögreglu og utanríkisráðherra um breytingar á herafla í Þýskalandi Inga Dögg lést á Skorradalsvatni Lögðu hald á eggvopn og fíkniefni en handtóku engan Verkalýðsfélög, gervigreind og Landeyjahöfn í Sprengisandi Fjórir handteknir vegna fjögurra líkamsárása Lögregla með virkt eftirlit við afmæli Hell's Angels Þrír flokkar skipa efstu sætin í nær öllum kjördæmum „Í versta falli alvarleg forréttindablinda“ Katla kjörin forseti Stúdentaráðs Töluverður viðbúnaður lögreglu í Kópavogi Taldi að vegabréfinu hefði verið stolið við Skógafoss „Þetta á náttúrulega ekki að gerast“ „Mjög gott að við höfum náð að slíðra sverðin“ Vinna að spálíkani til að skima sjálfvirkt fyrir vannæringu Beint: Pallborð Leigjendasamtakanna um húsnæðismál Glapræði að fella niður einu ferð dagsins: „Er öllum sama þó Grímsey fari í eyði?“ Það geti ekki hvaða skip sem er dýpkað í mynni Landeyjahafnar „Flokkur fólksins tekur í rauninni út óánægju með ríkisstjórnina“ Óska þess að ákvörðun um spítalann liggi fyrir sem fyrst Meirihlutinn á þingi fallinn, gremja í Grímsey og risadagur í íþróttunum Gulu hjólunum stillt upp á slysstöðum Verkalýðsfélögin úrelt og þau hefði mátt leggja niður um aldamótin Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Sjá meira