Aron Pálmi heim í ágúst 13. janúar 2007 10:00 aron pálmi Á bókað flug til Íslands og lendir 26. ágúst. Hann hefur einsett sér að léttast um 100 pund í það minnsta fyrir heimkomuna. „
Já, hann er búinn að bóka ferð heim þessi gleymdi sonur Íslands," segir Einar S. Einarsson talsmaður RFS-hópsins sem barist hefur fyrir frelsun og heimkomu Arons Pálma Ágústssonar. Að sögn Einars lýkur Aron Pálmi afplánun 17. ágúst, á skráðan miða heim 25. ágúst næstkomandi og lendir að morgni þess 26. á Keflavíkurflugvelli. Mál Arons Pálma hafa verið fréttamatur allt frá því að Kristinn Hrafnsson þá fréttastjóri á DV greindi frá aðstæðum hans og refsivist í Texas snemma árs 2004. Aron Pálmi, sem fæddur er árið 1983, var dæmdur árið 1997 í tíu ára refsivist fyrir að hafa barn að aldri sýnt af sér refsiverða kynferðislega tilburði. RJF hópurinn, sem telur skákjöfra á borð við Einar, Guðmund G. Þórarinsson, Garðar Sverrisson, Helga Ólafsson og fleiri, tók málið upp á sína arma. En áður hafði hópurinn lagt sitt af mörkum svo Bobby Fischer gæti komið til landsins og fengið íslenskan ríkisborgararétt úr fangelsi í Japan. Til þess vísar nafn hópsins - upphafsstafa Roberts James Fischers. „Aron Pálmi er nú búinn að afplána 10 ár í refsivist. Þar af fjögur ár í stofufangelsi. Hann hefur notið þess síðasta eina og hálfa árið að geta stundað nám við Lamor háskóla í Texas. Þar eru átta þúsund nemendur," segir Einar og kveður skólavist Arons Pálma hafi gengið að óskum. Hann hefur meðal annars verið valinn í stúdentaráð og kjörinn ritstjóri árbókar skólans. einar s. einarsson Fer fyrir RJF-hópnum sem hefur styrkt Aron Pálma til náms en í Lamor háskólanum gengur Aroni allt í haginn þrátt fyrir viðkvæma stöðu. Einar segir það öllu máli skipta að Aron hafi um eitthvað að hugsa í þeirri viðkvæmu stöðu sem Aron er. Til dæmis hafi menn veist að honum og Aron Pálmi ekki þorað að svara fyrir sig af ótta við að borið sé á hann að Aron hafi átt upptökin. Það þýði að hann þarf að endurtaka refsivist sína. Aron Pálmi er af þeim sökum taugaóstyrkur og framganga hans varleg til samræmis við erfiða stöðu hans. „Hann má ekki lenda í neinu núna þessa síðustu mánuði," segir Einar sem heyrir reglulega frá Aroni Pálma. Að sögn Einars hefur hann einsett sér að léttast um 100 pund í það minnsta fyrir heimkomuna. „Hann er vel í hold kominn. Enda hefur hann örugglega lifað á einhverju ruslfæði og hormónakjöti," segir Einar. RJF hefur stutt Aron Pálma dyggilega að sögn Einars og greitt fyrir skólagöngu hans nú vel á aðra milljón. „Þetta er eitthvað sem við höfum verið að öngla saman og safnað. Nei, við erum ekki enn farnir að undirbúa komu hans," segir Einar. Enda nokkrir mánuðir í að Aron lendi. Til marks um það hversu sterkur karakter Aron Pálmi er hefur Einar það að hann hefur gengið með GPS-staðsetningartæki á fjórða ár sem mun einsdæmi í heiminum, í það minnsta vestan hafs, en hámarkið hefur verið eitt ár. „Og hann er að rita bók um reynslu sína af refsikerfinu í Texas. Hann hefur sent mér kafla: „Welcome to the system" heitir hann og sláandi."
Mest lesið Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir Lífið Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart Lífið Hafna ásökun um lagastuld og líður eins og bekkjartrúð á Íslandi Tónlist „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Lífið Myndaveisla: Aron Can var ekkert að flækja þetta Tónlist Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Lífið „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Lífið Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Lífið Málverk af Danakonungi vekur athygli Menning Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Lífið Fleiri fréttir Fimmtug hjón vilja swinga með vinahjónum sínum Eyddi mörgum árum í að fela það sem aðrir tóku varla eftir „Bókmenntalegir palladómar frá mér ekki mikils virði“ Krakkatía vikunnar: Tjútt, tjull og feitir bangsar Sleppti því að þrífa símann í viku og niðurstaðan kom á óvart „Þegar ég syng finn ég mest fyrir pabba“ Fréttatía vikunnar: Kíró, tár og ræningjarenna Segir stjórnendur Ungfrú Ísland hafa gert upp á milli keppenda Taka upp Netflix þætti í miðbænum og Tina Fey óvæntur gestur Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni „Bjóða upp á einhverja díla sem meika engan sens og undirbjóða allt“ „Það voru margir með tár á hvarmi“ Svín út um allt í fallegu einbýli Björns Braga Margot Robbie ekki lengur Margot Robbie Hvað veistu um… kvikmyndahátíðir? Kærasta Love Island stjörnunnar Davide í fangelsi Birgitta mætti sem fimleikakona, markmaður, leikmaður og þjálfari Taylor og Taylor nefndu barnið Taylor Þú trúir ekki hvað lögreglan gerði við sönnunargagnið Greiðir sér hálfan milljarð í arð Bandarísk sjónvarpsstjarna spókaði sig um í miðbænum „Rosalegt brot á mínu einkalífi“ Edda með tárin í augunum Fyrrverandi maður Clancy á von á barni Kynlífsstunur og sjálfsfróun á tískusýningu Veltir fyrir sér hvers vegna hún sé alltaf gröð í flugvél Arnaldur græddi 113 milljónir og Yrsa tuttugu Í kossaflensi á listasýningu Sneri vörn í sókn í vinaleysinu Misstu sig þegar sigurinn var í höfn Sjá meira