Vinna gegn launamun og endurmeta kjör kvennastétta 11. september 2007 14:15 MYND/Pjetur
Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Árni Mathiesen fjármálaráðherra hafa ákveðið að skipa þrjá starfshópa til þess að fylgja eftir markmiðum ríkisstjórnarinnar á sviði jafnréttismála í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Hóparnir eiga að vinna gegn óútskýrðum launamun og endurmeta kjör svokallaðra kvennastétta.Jóhanna kynnti málið á fundi ríkisstjórnar í morgun. Eftir því sem fram kemur á vef félagsmálaráðuneytisins mun félagsmálaráðherra skipa fimm manna starfshóp sem ætlað er meðal annars að leita leiða til að eyða óútskýrðum launamun kynjanna á almennum vinnumarkaði ásamt því að jafna stöðu kvenna og karla í nefndum og stjórnum stofnana og fyrirtækja. Auk fulltrúa stjórnvalda verður óskað tilnefninga frá samtökum aðila á almennum vinnumarkaði til setu í starfshópnum.Þá mun félagsmálaráðherra skipa sjö manna starfshóp sem hefur það hlutverk að vera ráðherra til ráðgjafar um framvindu verkefnisins og mun vinna eða láta vinna mat á raunverulegum árangri aðgerða. Óskað verður tilnefninga frá Háskóla Íslands, Háskólanum á Bifröst, Háskólanum í Reykjavík, Jafnréttisstofu, Jafnréttisráðs og Kvenréttindafélagi Íslands í hópinn.Fjármálaráðherra skipar svo hóp sem hefur það meginverkefni að setja fram áætlun um að minnka óútskýrðan launamun kynjanna á opinberum vinnumarkaði með það að markmiði að hann minnki um helming á kjörtímabilinu. Hópurinn á einnig að endurmeta kjör kvenna hjá hinu opinbera, einkum þeirra stétta þar sem konur eru í miklum meirihluta. Auk fulltrúa stjórnvalda verður óskað tilnefninga frá samtökum aðila hjá hinu opinbera til setu í starfshópnum.Fulltrúar ráðherranna ásamt formönnum framangreindra þriggja starfshópa munu síðan starfa saman að því að samhæfa störf hópanna og fara yfir tillögur þeirra, eftir því sem segir í tilkynningu ráðherra.
Mest lesið Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Innlent Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Innlent Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Innlent Eldur kviknaði við Stálhellu Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Rekinn vegna viðvörunar um „samfélagskrísu“ í Rússlandi Erlent Ný meðferð gegn sortuæxlum lofar góðu Erlent Ísraelsher viðurkennir að hafa skotið fimm ára stúlku Erlent Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Innlent Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni Innlent Vaxtahækkunin geti gert illt verra Innlent Fleiri fréttir Skóli hefst á ný í Grindavík og þingmenn efast um fullyrðingar Rússa Ókeypis strætó-skutlur á Menningarnótt og tæming frá Sólfarinu Gistiheimili Sverris í Grímsnesi innsigluð Tilkynntur til barnaverndar eftir að hann deildi mynd af syni sínum með byssu Ráðast í byltingarkenndar endurbætur í Kvosinni „Tengsl Íslands og Eistlands eiga sér sérstaka sögu“ Fleiri þingmenn segja nei en já og aðrir vilja ekki svara Eldur kviknaði við Stálhellu Vaxtahækkunin geti gert illt verra Þessi voru tekjuhæsta sveitarstjórnarfólkið í fyrra Settu saman fyrsta íslenska fjölerfðamengið Sammála því að erfitt haust sé í vændum Aðstoða grunnskólabörn Reykjavíkur við heimanám Betur fór en á horfðist þegar flutningabíll valt „Við höfum ekki náð þeim árangri sem við hefðum viljað“ Samþykkti samninginn: „Lágmark að láta fjármagn fylgja“ Með nefið í flugbrautinni eftir harkalega lendingu Fjármálaráðherra og vinnumarkaðurinn bregðast við vaxtahækkun SVÞ og netáfengisverslanir skora á Alþingi Lýsir áfalli vegna vinnubragða gamla meirihlutans Gæsluvarðhald framlengt yfir meintum Kársnesmorðingjum Ránfugl gæddi sér á smáfugli í Vesturbænum Gæti séð fyrir sér að kjarasamningar haldi Hafi byrlað tólf ára fósturdóttur og nauðgað ítrekað Vilja banna frjáls ferðalög ísraelskra ferðamanna á Íslandi Meintur Kársnesmorðingi handtekinn í Barcelona Brotin úr jakanum geti valdið flóðbylgju Skýrslutökunni lauk skyndilega: „Ég get ekki meira“ „Jón Sigurðsson nefndi aldrei sjálfstæði“ Stýrivextir hækka og borgarísjaki í Djúpinu Sjá meira