Stálu bílum og tölvubúnaði fyrir milljónir króna 22. ágúst 2007 10:54 Annar maðurinn er ákærður fyrir að stela tölvubúnaði úr BT. Myndin tengist málinu ekki.
Tveir 25 ára gamlir menn hafa verið ákærðir fyrir stórfelld og ítrekuð hegningarlagabrot. Ákærulistinn er langur. Mennirnir eru meðal annars sakaðir um að hafa stolið bílum og tölvubúnaði fyrir milljónir króna. Einnig eru þeir ákærðir fyrir fjölmörg innbrot, lyfjaakstur og umferðarlagabrot. Málið var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær.Ákærulistinn er eftirfarandiSjötta mars 2007 brutust mennirnir inn í Víkurverk ehf. og stálu tölvum, sjónvarpstækjum og DVD spiluruum að andvirði 2,4 milljónir. Á sama tíma stálu þeir bifreið af Víkurverki. Sama dag stálu þeir kerru fyrir utan bensínafgreiðslu Skeljungs að Gylfaflöt í ReykjavíkFjölmörg innbrotAnnar maðurinn braust inn í íbúðarhúsnæði í Norðlingaholti og stal fartölvu í lok október. Í byrjun nóvember setti maðurinn skráningarmerki af Bens bifreið á Volkswagen Golf bifreið og ók um á bifreiðinni með röng skráninganúmer. Síðar í nóvember braust maðurinn inn í verslunarhúsnæði í Gylfaflöt og stal tölvubúnaði fyrir á fjórða hundrað þúsund krónur. Sama dag stal maðurinn tölvubúnaði úr BT fyrir 36 þúsund krónur. Daginn eftir var maðurinn tekinn með amfetamín við Helluhraun í Hafnarfirði. Í lok nóvember fundust einnig í vörslu mannsins munir sem stolið var í innbroti á heimili að Hraunbergi daginn áður. Þá er maðurinn ákærður fyrir að hafa flutt skráningamerki af Toyota Corolla bifreið á aðra Corolla bifreið og ekið um á röngum skráninganúmerum á lokadögum nóvember mánaðar. Um miðjan febrúar á þessu ári braut maðurinn rúðu í bifreið sem stóð við Fákafen. Í byrjun mars stal hann bifhjóli fyrir utan heimili í Hraunbæ í Reykjavík. Einnig stal hann kerru við Langatanga í Mosfellsbæ. Þriðja mars var maðurinn tekinn fyrir lyfjaakstur á bensínstöð Select á Vesturlandsvegi í Reykjavík. Í lok mars stal hann myndvarpa úr verslun í Síðumúla í Reykjavík Í byrjun apríl ók maðurinn undir áhrifum lyfja og var tekinn við Frakkastíg í Reykjavík þar sem hann keyrði gegn einstefnu Um miðjan maí braust maðurinn inn í einbýlishús á Arnarnesi í Garðabæ og stal þaðan ýmsum munum að verðmæti ríflega 1 milljón króna. Seinni partinn í júní stal maðurinn hjólbörðum að andvirði tæplega 300 þúsund krónur af vörubifreiðastöð á Höfða. Um mánaðarmótin júní/júlí stal maðurinn bifreið við bensínstöð Essó við Ártúnsbrekku í Reykjavík.Félagi mannsins stal munum að verðmæti 3,5 milljónirFélagi mannsins er ákærður fyrir að hafa í byrjun janúar 2007 farið inn í nýbyggingar við Rauðmýri í Mosfellsbæ og stolið munum að verðmæti 1400 þúsund krónum. Um miðjan febrúar stal maðurinn fjórhjóli að verðmæti 1400 þúsund krónur fyrir utan verslun á Kletthálsi. Í mars tók hann við bifhjóli úr höndum félaga síns þrátt fyrir að vita að hjólið væri stolið. Einnig braust hann inn á lokað svæði að Viðarhöfða og stal hjólbörðum að verðmæti 700 þúsund krónum og bílkerru.
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Innlent Árásin til marks um aukna hörku vestanhafs Erlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Fleiri fréttir „Hann grípur alltaf fram í“: Oddvitar beðnir um að sýna hvor öðrum kurteisi Íslendingur lést í fallhlífarslysi í Danmörku Samfylkingin stærst á Akureyri Skotárás á kvöldverði Bandaríkjaforseta og klakstöðvar lúsmýsins Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Sjá meira