Hótuðu að senda barnaníðing á son hans 9. mars 2007 06:30 Sigurður Fannar Þórsson hefur setið í gæsluvarðhaldi síðan hann var handtekinn í nóvember. MYND/GVA
27 ára gamall karlmaður, Sigurður Fannar Þórsson, var í gær dæmdur í 44 mánaða fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa flutt til landsins tæp þrjú kíló af kókaíni. Sigurður var handtekinn 21. nóvember í fyrra við komuna frá Kaupmannahöfn. Efnin fundust í fölskum botni ferðatösku hans en fíkniefnahundur tollgæslunnar varð þeirra var. Sigurður játaði fyrir dómi að hafa flutt kókaínið til landsins. Hann sagði innflutninginn hafa verið skipulagðan af mönnum hér á landi sem hann vildi ekki nafngreina af ótta við hefndir gegn honum eða hans nánustu. Hann kvaðst hafa verið í mikilli kannabisneyslu árin fimm á undan, auk þess sem hann neytti kókaíns annað veifið. Hann hafi skuldað fíkniefnasölum um eina milljón króna. Í september á síðasta ári ákvað Sigurður að flýja vandræði sín og setjast að í Svíþjóð. Fljótlega fór hann að hafa áhyggjur af að lánadrottnar hans myndu hafa uppi á honum eða gengju að fjölskyldu hans. Því sneri hann aftur til Íslands til að útkljá sín mál. Lánardrottnar hans kröfðust þess að hann færi umrædda ferð og flytti efnin til landsins til að gera upp skuldina. Þegar hann hafi neitað hafi hann verið barinn, bundinn á höndum og fótum, stungið í farangursrými bifreiðar og látinn dúsa þar yfir nótt. Barsmíðunum var svo fram haldið daginn eftir og hnífur borinn að hálsi hans. Þá var Sigurði tjáð að barnaníðingur yrði sendur á son hans ef hann færi ekki að vilja mannanna. Í niðurstöðu dómsins segir að Sigurði hefði verið fullljóst að kókaínið hefði verið ætlað til sölu í ágóðaskyni. Dómurinn tók tillit til þess að hann hefði flutt efnin til landsins undir þrýstingi. Þá var til þess tekið að þetta var fyrsta refsibrot hans.
Mest lesið Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla Innlent Maðurinn fannst látinn í gilinu Innlent Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Innlent Inga kemur Ingó til varnar Innlent Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Innlent Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Innlent Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Innlent „Við búum í brjáluðum heimi“ Erlent Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Innlent Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Innlent Fleiri fréttir Harmleikurinn á Edition og umdeild bifreiðarstöð Óvenjulegt tímabil klárast á dögunum Jón Pétur segir enga feðraveldisrembu í „árþúsunda náttúruvali“ Heimilt að nota rafrænt eftirlit í nálgunarbannsmálum „Það þarf að taka í handbremsuna strax“ „Var þetta einhver skets?“ Inga kemur Ingó til varnar Íbúar funda aftur um stöðu Kaffistofunnar Konan ákærð fyrir manndráp á Edition Eden Mining vill ekki sjá málið fyrir dómstólum Ísland kunni að kreista veski ríkra ferðamanna Íslendingurinn var nemandi í lýðháskóla „Mér finnst þetta ákaflega dapurleg framganga“ Sjö þúsund störf gætu verið unnin af gervigreind Vill hætta veiðum en græna ljós Bjarna gildi Hitafundur í utanríkismálanefnd og ráðherra boðar breytingar á hvalveiðilögum Inga vill ekki setja „tugi milljarða í loftslagsmál“ Beitir sér ekki sérstaklega fyrir því að spurningunni verði breytt Stjórnarþingmaður segir Hafró í bullandi pólitík Handteknu hafa komið áður við sögu hjá lögreglu Bein útsending: Kristrún svarar spurningum um þjóðaratkvæðagreiðslu Tveir handteknir í tengslum við stórfellda líkamsárás Furðar sig á þögn yfir „einu helsta áhyggjuefni Íslands“ Krónu kastað fyrir aurinn í fjármögnun skóla Maðurinn fannst látinn í gilinu Sást til einstaklings ofan í gili við Háafoss Skrítið að dómsmálaráðherra blandi sér í umræðuna Barist gegn lúsmýinu: „Einhvers staðar eru þær að fjölga sér“ Fallhlífin byrjaði að snúast eftir opnun Stál í stál og sammála um fátt á fundi um ESB Sjá meira