Innlent

Sölumenn SS mættu ferskir til vinnu í morgun

Sölumennirnir hafa sennilega pulsað sig upp.
Sölumennirnir hafa sennilega pulsað sig upp.

Útisölumenn hjá Sláturfélagi Suðurlands, sem flestir tilkynntu sig veika í gær, mættu hressir til vinnu í morgun. Eins og greint var frá í gær herma heimildir Vísis að sölumennirnir hafi ekki verið veikir heldur hafi þeir verið að mótmæla skipulagsbreytingu hjá fyrirtækinu.Forstjóri SS segir engin eftirmál verða að atvikinu, málin hafi verið rædd í morgun.

Sölumennirnir, tíu til tólf talsins, munu hafa verið ósáttir með að vegna skipulagsbreytinga hafi starfi Einars Viðars Gunnlaugssonar, sölustjóra, verið slátrað. Þeir hafi viljað láta óánægju sína í ljós með þessum aðgerðum í gær.

Steinþór Skúlason, forstjóri SS, sagði í samtali við Vísi í gær að hann vildi ekki trúa því að fólk segði ósatt um heilsufar sitt. Hann sagðist ekki hafa orðið var við óánægju starfsmanna vegna skipulagsbreytinganna og hann benti á að ákvörðunin um að leggja starf Einars niður hefði ekkert haft með störf hans hjá SS að gera.

Í samtali nú í dag segir Steinþór hins vegar að allir hafi mætt til vinnu sinnar í morgun. „Málin voru rædd í morgun og ég geri ekki ráð fyrir því að það verði eftirmál af þessu," segir hann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×