Orka Þjórsár boðin öðrum til kaups 7. september 2007 18:30
Forgangur Alcan í Straumsvík að orku Þjórsárvirkjana er úr sögunni og hefur Landsvirkjun þegar hafið viðræður við önnur fyrirtæki. Ekki er þó búið að loka á Alcan.Landsvirkjun og Alcan undirrituðu í ársbyrjun 2006 viljayfirlýsingu um raforkukaup vegna stækkunar álversins í Straumsvík. Með henni skuldbatt Landsvirkjun sig til að ræða ekki við aðra orkukaupendur um sölu á rafmagni frá virkjanakostum í neðri Þjórsá meðan viðræður fyrirtækjanna stæðu yfir. Álverskosningin í Hafnarfirði í marsmánuði setti hins vegar strik í stækkunaráformin en meirihluti kjósenda hafnaði deiliskipulagi sem gerði ráð fyrir stækkun. Alcan hóf þá að kanna aðra kosti til álversuppbyggingar, bæði í Þorlákshöfn og á Keilisnesi, enda hafði Landvirkjun framlengt forgang Alcan að orku Þjórsárvirkjana til 1. júlí síðastliðinn. Þegar sá dagur rann upp lýsti Landsvirkjun því enn yfir að viðræður yrði ekki hafnar við aðra aðila en áfram rætt við Alcan.En nú hefur orðið stefnubreyting og hefur Landsvirkjun ákveðið að hleypa fleiri aðilum að samningaborðinu. Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, staðfesti í samtali við Stöð 2 í dag að stjórn fyrirtækisins hefði ákveðið að rætt yrði við alla þá aðila sem áhuga hefðu á orkukaupum. Kannað yrði meðal annars hvaða verð þessir aðilar væru tilbúnir að greiða fyrir orkuna og hvaða ábyrgðir þeir gætu boðið. Friðrik tók fram að þetta þýddi ekki að búið væri að loka á Alcan. Ákvörðun Landsvirkjun gefur hins vegar öðrum áhugasömum stórkaupendum að raforku færi á að yfirbjóða Alcan, bæði öðrum álfyrirtækjum eins og Norsk Hydro og Norðuráli, sem og aðilum úr öðrum geirum, eins og netþjónabúum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Bandaríkjamenn ráðast á Íran Erlent Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Innlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Innlent Fleiri fréttir Öskur, reykelsisfnykur, greiðslufall og gámarót Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Samþykkt frumvarpsins framkalli ekki sigurtilfinningu Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Hlekktist í lendingu á Egilsstaðaflugvelli Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Olíumengun í Kópavogslæk „Netglæpamenn munu nýta sér þetta hratt og á skaðlegan hátt“ No Borders hvetja til andspyrnu gegn brottfararstöð Hringbraut eins og rússnesk rúlletta Handtekinn á bíl með nagladekkjum „Þetta er hreinn uppspuni“ Fjöldi netbrota fjórfaldast og dómsmálaráðherra í beinni um brottfararstöð „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Umdeild brottfararstöð leidd í lög Fimm úrskurðaðir í áframhaldandi gæsluvarðhald Hætta aftur rannsókn á Múlaborgarmálum Íbúar á flæðiskeri staddir eftir samdrátt í umsvifum Icelandair Telja Ríkisútvarpið bullandi hlutdrægt í ESB-málinu Landris og kvikusöfnun heldur áfram Trúir ekki öðru en að nýir herrar fjarlægi „níðstöngina“ Enginn þurfi að óttast að vera skilinn frá maka sínum Safnað fyrir foreldra Bergs Ottós Áfrýjar ekki dómi fyrir brot á Múlaborg Gervigreindin aukið hraða netsvika gríðarlega Góður gangur í fundarhöldum um þinglok Enn tekist á um þingstörfin og gervigreindin eykur hættuna á netglæpum Jóna Árný endurráðin bæjarstjóri „Fórnarlambið látið borga brúsann“ Sjá meira