Sveitarfélögin taki á fortíðarvanda Strætós Björn Gíslason skrifar 7. september 2007 12:25 MYND/Valgarður
Tap Strætós byggðasamlags var um 80 milljónir króna á fyrri helmingi þessa árs samkvæmt árshlutareikningi sem stjórn fyrirtækisins samþykkti í síðustu viku. Um töluverðan bata í rekstri er að ræða á milli ára því tapið á fyrri helmingi síðasta árs var 395 milljónir. Byggðasamlagið glímir hins vegar við uppsafnaðan rekstarvanda upp á 650 milljónir og hefur stjórn þess leitað eftir því að sveitarfélögin leysi þann vanda.Tap Strætós á síðasta ári nam 532 milljónum króna en að sögn Ármanns Kr. Ólafssonar, stjórnarformanns Strætós, hefur verið unnið að því frá því að ný stjórn tók við eftir sveitarstjórnarkosningar í fyrra að laga stöðu samlagsins. Hann segir að ef ekki hefði verið gripið inn í hefði tap síðasta árs hæglega getað verið á bilinu 800-900 milljónir króna. Ánægjulegur viðsnúningur hafi verið á fyrri helmingi þessa árs þar sem hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði hafi verið um 20 milljónir króna.Strætó tæknilega gjaldþrotaVið tap ársins 2006 bættist tapið á árinu 2005 sem nam nærri 200 milljónum króna og því er rekstrarvandi Strætós æði mikill. Fram kemur í ársskýrslu fyrir síðasta ár að eigið fé byggðasamlagsins hafi verið neikvætt um 650 milljónir. Aðspurður hvort Stætó sé þá ekki tæknilega gjaldþrota játar Ármann því en segir að önnur lög gildi um byggðasamlög en almenn fyrirtæki.Það sé á ábyrgð sveitarstjórnanna á höfuðborgarsvæðinu að takast á við vandann. Væntanlega verði tekið á þessum fortíðarvanda á nokkrum árum þar sem um mikla fjármuni sé að ræða. „Það þarf hins vegar að taka á málinu sem fyrst því það er nánast ómögulegt að reka félagið undir þessum kringumstæðum," segir Ármann.Aðspurður segir Ármann að uppsafnað rekstarvanda á árunum 2005 og 2006 megi meðal annars rekja til þess að leiðum hafi verið bætt inn í tengslum við breytingar á strætókerfinu. Það hafi verið mjög dýrt. Þá hafi sú ákvörðun að bjóða upp á strætóferðir á tíu mínútna fresti ekki skilað því sem ætlað var. Jafnvægi sé að nást í rekstrinum og nú viti menn hvað þeir séu með í höndunum.Búast við tapi á þessu áriMeðal sparnaðaraðgerða sem gripið var til var að bjóða aðeins upp á Strætó á hálftímafresti í sumar og segir Ármann að lítið hafi borist af kvörtunum vegna þess. Hann segir að forsvarsmenn Strætós hafi nú aðlagað starfsemi Strætós á þann hátt að bjóða upp á flestar ferðir þegar álagið sé mest. Þannig séu ferðir á fimmtán mínútna fresti á helstu leiðum á álagstímum.Aðspurður segir Ármann að áætlanir þessa árs hafi gert ráð fyrir sparnaði upp á 160 milljónir króna. „Það kallaði hins vegar á skerta þjónustu og á það féllust sveitarfélögin ekki," segir Ármann. Þá hafi tekjur Strætós verði minni en áætlað var og stjórnin hafi viljað bregðast við því með sparnaði en á það hafi heldur ekki verið fallist. Því sé útlit fyrir að tap ársins verði 160 milljónir og það sé sveitarfélaganna að glíma við þann vanda.
Mest lesið Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn Innlent Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Innlent Elon Musk stofnar nýjan stjórnmálaflokk Erlent Leynileg neyðarfjárveiting Dana til flugvallagerðar á Grænlandi Erlent Fjörutíu og þrír látnir og umfangsmiklar leitarðagerðir standa yfir Erlent Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Innlent „Býsna margt orðið grænmerkt“ Innlent Konan er fundin Innlent Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Innlent Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Innlent Fleiri fréttir Skæður hakkarahópur herjar á framlínustarfsmenn „Býsna margt orðið grænmerkt“ Fjarlægðu sprengju við Keflavíkurflugvöll Leitar að eiganda trúlofunarhrings sem fannst í fjöru Á þriðja tug látnir í Texas og netþrjótar herja á flugfélög Nikkurnar þandar á Reyðarfirði alla helgina Íbúðin í rúst eftir Airbnb-gesti Konan er fundin Þriggja leitað vegna stunguárásar í miðbænum Björguðu göngukonu í sjálfheldu við Hrafntinnusker Mótorhjólakappi fluttur á sjúkrahús eftir að hafa fipast við akstur Tuttugu þingmenn mættu ekki á þingfund Vilja að nemendur borgi allt að 180 þúsund til að skrá sig Búið að boða til nýs fundar Kerecis bjargaði lífi skallaarnar í tæka tíð fyrir fjórða júlí Lögregla hleypti manni inn sem hafði læst sig úti Lítill munur á bitum bitmýs og lúsmýs Sex fluttir á sjúkrahús eftir umferðarslys í Hörgársveit Inga mundaði skófluna við Sóltún „Þá fylgir það börnum í gegnum skólakerfið og út í samfélagið“ Nýtt bankaráð Seðlabankans skipað Sósíalistum bolað úr Bolholti Sýknaður af kæru Samtakanna 78 um hatursorðræðu Lokametrar, bútasaumur og Starbucks Veiðigjaldið aftur í nefnd og viðræður komnar á lokametra Lára snýr sér að kynningarstörfum fyrir HR Bætti þúsund tonnum í strandveiðipottinn Skellt upp úr í þingsal þegar ráðherra reyndi að mynda hjarta Rúv vildi Ísraelsmenn burt en þeir sluppu með skrekkinn í bili Lögðu hald á mikið magn fíkniefna og fleiri milljónir Sjá meira