Astrópía valtar yfir Bourne Ultimatum 7. september 2007 18:49 Fjallað um Astrópíu í erlendum fjölmiðlum.
Aðsókn á kvikmyndina Astrópíu hefur vakið athygli langt út fyrir landsteinana. Fjallað er um málið í nýjasta tölublaði bandaríska kvikmyndablaðsins Screen International. Þar þykir það eftirtektarvert að á sama tíma og aðsókn á stórmyndina Bourne Ultimatum dregst saman hérlendis eykst aðsókn á Astrópíu. „Við erum að vonum mjög ánægðir með þessa umfjöllun," sagði Ingvar H. Þórðarson, framleiðandi Astrópíu, í samtali við Vísi. „Þetta er fín auglýsing og á eflaust eftir að hjálpa okkur þegar við förum með myndina í dreifingu erlendis. Þessi umfjöllun Screen International hefur einnig vakið athygli hjá Warner Brothers." Í nýjasta tölublaði bandaríska kvikmyndablaðsins Screen International er fjallað um aðsókn á kvikmyndina Bourne Ultimatium víðs vegar um heim. Í greininni vekur það athygli að aðeins á Íslandi fer myndin ekki í fyrsta sæti heldur þarf að víkja fyrir myndinni Astrópíu. Fyrstu viku frá frumsýningu féll aðsókn á Bourne Ultimatum um 49 prósent á Íslandi en á sama tíma jókst aðsókn á Astrópíu um eitt prósent. Þá segir ennfremur í greininni að greinilegt sé að Ragnhildur Steinunn Jónsdóttir, aðalleikona Astrópíu, valti yfir leikarann Matt Damon á Íslandi. Yfir 25 þúsund manns hafa séð Astrópíu frá því myndin var frumsýnd í lok síðasta mánaðar. Ingvar segist búast við því að aðsóknin fari yfir 30 þúsund um helgina. „Við reiknum með að fara yfir 30 þúsund manns um helgina."
Mest lesið Ógn á galakvöldverði og forsetinn fluttur á brott Erlent Bóndakonan á Bakkakoti er látin Innlent Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Innlent Myndir: Upplausn á blaðamannamóttöku Erlent Hlaut alvarlega höfuðáverka eftir árekstur á rafhlaupahjóli Erlent Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Innlent Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans Innlent Enn má búast við slyddu eða snjókomu Veður „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Innlent Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konunglega heimsókn Erlent Fleiri fréttir Oddvitar í Kópavogi um nýjustu könnun Ölvun, vopnaburður og áfengishnupl Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum Bóndakonan á Bakkakoti er látin Örvæntir ekki yfir fregnum af falli meirihlutans „Þessi snillingur er náttúrulega ótrúlegur“ Skemmdarvargar á tjaldsvæði í Höfðavík Samfylking og Miðflokkur á flugi í Kópavogi Inni og úti: „Kannanir eru nú bara kannanir“ Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Sjá meira