Ósanngjörn, óþolandi og ómálefnaleg gagnrýni 7. september 2007 18:17 Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar. MYND/365
Gagnrýni Afls, starfsgreinasambands, á þann frest sem Vinnumálastofnun veitti verktökum á Kárahnjúkasvæðinu í gær er ósanngjörn, ómálefnaleg og óþolandi að mati forstjóra stofnunarinnar. Hann segir gagnrýni starfgreinasambandsins fara langt út fyrir öll mörk og varla sé mark takandi á henni. „Þetta er ósanngjörn, ómálefnaleg og óþolandi gagnrýni," sagði Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálastofnunar, í samtali við Vísi. „Ekki síst gagnvart starsfmönnum stofnunarinnar sem eru að vinna verk sín í góðri trú." Í yfirlýsingu sem stjórn Afls, starfsgreinasambands, gaf frá sér í gær er Vinnumálstofnun harðlega gagnrýnd fyrir að gefa verktakafyrirtækjum á Kárahnjúkasvæðinu frest til að óskráðir starfsmenn geti haldið áfram vinnu þar. Ennfremur segir í yfirlýsingunni að stjórn félagsins geti ekki lengur treyst Vinnumálstofnun til að verja rétt launafólks í landinu. Gissur segir að full samvinna hafi verið við trúnaðarmenn stéttarfélaga á Kárahnjúkasvæðinu þegar ákveðið var að gera samninga við verktakafyrirtækin. Þá segir hann ljóst að samningarnir tryggi að öll réttindi erlendra starfsmanna á svæðinu verði virt. „Með þessum aðgerðum í gær drögum við fram upplýsingar sem stéttarfélögin hafa ekki fengið hingað til. Þau fá síðan þessar upplýsingar í hendur til að hægt sé að tryggja réttindi starsfmanna. Verktakafyrirtækið Arnarfell hefur ábyrgst að við allar kröfur verði staðið. Þannig er tryggt að þessir menn fá öll sín réttindi. Að okkar mati dugði þessi þrýstingur til að fá lausn í málinu. Að mínu mati fer þessi yfirlýsing Afls því langt yfir strikið og varla hægt að taka mark á henni."
Mest lesið Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Innlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Mikill munur á fjölda útskrifaðra úr framhaldsskóla eftir grunnskólum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Innlent Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Innlent Þrjú hundruð sagt upp hjá Berjaya Innlent Fleiri fréttir Tulsi Gabbard lætur af embætti Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Íslendingur vann 336 milljónir króna Sektaður fyrir að vera á nagladekkjum Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Bæjarstjóri Hafnarfjarðar fer yfir dramatíkina Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Verðlaunuð fyrir að bjóða unglingum upp á Sveitasælu Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Margrét Helga til Ríkisútvarpsins Nýr meirihluti í Hörgársveit Frumvarp um brottfararstöð úr nefnd í næstu viku Kjaftfullt í golfinu í Grindavík Vildi að betur hefði verið staðið að uppsögnum hótelstarfsfólks Bein útsending: Fjallað um mælanlegan árangur á ársfundi Landspítala Sjálfstæðisflokkur býður Gylfa Þór upp í dans í Mosó Funduðu án Valdimars og ætla að hittast aftur Meirihlutaviðræður tilkynntar í Mosfellsbæ í dag og Hildur hittir oddvita Nýr meirihluti í sameinuðu sveitarfélagi Fær engin símtöl: „Ekkert spenntur fyrir því að vera kostur, hvað, númer fimm?“ Guðjón skipaður í embætti forstjóra Sjúkrahússins á Akureyri Segir ETS-kerfið þegar hafa bitnað á flugi til Íslands Lokun gistiskýlis fyrir hælisleitendur sé áfangasigur Enn unnið að myndun meirihluta og gistiskýlinu í Borgartúni lokað Fengu ekki Baldur Samfylkingin mótmælti tillögu borgarstjóra Á hreinu að Valdimar hefði fengið bæjarstjórastólinn Sjá meira