Ráðherra hafði heimild til að veita rannsóknarleyfi Björn Gíslason skrifar 7. september 2007 17:02 MYND/E.Ól
Formaður iðnarðarnefndar segir að Jóni Sigurðssyni, fyrrverandi iðnaðarráðherra, hafi verið heimilt að veita Landsvirkjun rannsóknarleyfi við Gjástykki skömmu fyrir kosningar í vor. Hún telur samt að snyrtilegra hefði verið að leita aftur umsagnar hjá stofnunum, en Landsvirkjun sótti um leyfi til rannsókna á staðnum fyrir um þremur árum. Bæði iðnaðar- og umhverfisnefnd funduðu í dag þar sem erindi nokkurra náttúruverndarsamtaka vegna Gjástykkis norðan Kröfluvirkjunar voru tekin fyrir. Samtökin vildu að þingið skipaði rannsóknarnefnd um hvernig staðið var að útgáfu rannsóknarleyfis til Landsvirkjunar tveimur dögum fyrir kosningarnar í vor. Erindi um rannsóknarleyfi barst frá Landsvirkjun tveimur dögum fyrr, þann 8. maí, og sagði Jón Sigurðsson, fyrrverandi iðnaðarráðherra, að um hefði verið að ræða ítrekun á beiðni um rannsóknarleyfi sem sett hefði verið fram þremur árum áður. Náttúruverndarsamtökin telja hins vegar um nýja umsókn að ræða þar sem ný efnisatriði hafi komið fram í bréfinu. Þá kom í ljós að Landsvirkjun hefði hafið yfirborðsrannsóknir á svæðinu áður en leyfið var gefið og vildu samtökin fá úr því skorið hvort þær rannsóknir hefðu verið gerðar í leyfisleysi. Ráðherra hefur vítt rými til að veita rannsóknarleyfi Katrín Júlíusdóttir, formaður iðnaðarnefndar, segir enga endanlega niðurstöðu hafa fengist á fundinum en málsaðilar hafi skýrt sín sjónarmið. Aðspurð segist hún telja hæpið að rannsóknarnefnd verði skipuð. „Ráðherra hefur vítt rými til að veita rannsóknarleyfi eins og þetta og ég tel að honum hafi ekki verið óheimilt að gera það," segir Katrín. Hún bendir á að deilan snúist í raun um það hvort bréf Landsvirkjunar 8. maí hafi verið ítrekun eða ný umsókn um rannsóknarleyfi og það sé túlkunaratriði. Hún telji hins vegar að það hefði verið snyrtilegra hjá ráðherranum að leita umsagnar aftur hjá undirstofnunum þar sem ný atriði hafi komið fram í bréfi Landsvirkjunar. Katrín segir enn fremur að ráðherra hafi á síðasta kjörtímabili skort tæki eða ramma til að styðjast við, eins og rammaáætlun um nýtingu auðlinda. Það sé Alþingis að búa slíkt til og að Össur Skarphéðinsson, núverandi iðnaðarráðherra, hafi lýst því yfir að engin ný rannsóknarleyfi yrðu gefin út fyrr en slík áætlun lægi fyrir. Katrín segir að margt hafi skýrst á fundinum í dag. Til að mynda hafi komið í ljós að Landsvirkjun hafi ekki haft heimild til þess að hefja yfirborðsrannsóknir á svæðinu, áður en leyfið var gefið út í vor, frá iðnaðarráðuneytinu en hins vegar hafi fyrirtækið haft heimild til þess frá landeigendum á svæðinu.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur í verkefni út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira