Bæjarins beztu 70 ára og pylsan á 20 kall um helgina 7. september 2007 18:58
Elsti veitingastaður landsins, Bæjarins beztu, er 70 ára í dag. Í tilefni afmælisins fæst pylsan og kókið á 20 krónur um helgina, laugardag og sunnudag. Öll velta helgarinnar fer til stuðnings Konukoti. Bæjarins bezta hefur verið í eigu sömu fjölskyldunnar frá árinu 1937 og nú er fjórða kynslóðin farin að setja tómatinn og laukinn í brauðið. Fáir íslenskir veitingastaðir njóta jafnmikilla vinsælda, hvort sem horft er til Íslendinga eða ferðamanna auk þess sem ríkulega er fjallað um staðinn í erlendum tímaritum og á ferða-vefsetrum. Sprenging varð í vinsældum staðarins á leiðtogafundi Reagans og Gorbatsjoffs í Reykjavík að sögn Guðrúnar Kristmannsdóttur, framkvæmdastjóra Bæjarins beztu. Hún segir að fréttamenn hafi þurft eitthvað annað að fjalla um en hurðarhúninn á útihurðinni á Höfða. Fyrir réttum tveimur árum valdi breska tímaritið The Guardian Bæjarins beztu sem annan besta veitingastandinn í allri Evrópu. Blaðamaður Guardian sagði að íslenska pylsan væri sú besta í öllum heiminum. Íslenska pylsan er að hluta til dönsk að uppruna en lambakjötið fær þó að njóta sín og gefur pylsunni algjöra sérstöðu. Brauðið hvíta þykir líka ómissandi en í gamla daga var pylsan gjarnan borðuð í vínarbrauði. Einn frægasti einstaklingurinn til að snæða á Bæjarins beztu er án vafa Bill Clinton. Það eru líka ekki allir veitingastaðir sem geta státað af því að réttur heiti í höfuðið á fyrrum bandaríkjaforseta. Clinton er pylsa í brauði með sinnepi og engu öðru.
Mest lesið Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Fleiri fréttir Tvær þyrlur í verkefni út á ystu nöf lögsögunnar Sökk í þriðja sinn í höfninni „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Forsætisráðherra um gjaldskrárhækkanir og ESB-umsókn „Ætlunin er ekki að aðlaga þá aftur að samfélaginu“ Kristrún ræðir málin á Sprengisandi Samkvæminu slúttað vegna brots á lögum Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Óttast að fjármagn til námsgagna rati ekki rétta leið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Óttast að umræðan muni dragast fram á sumar Fékk nóg og er hættur á Facebook Guðmundur Ari í varaformanninn Flugvirkjar hafi þegar fengið hækkanir „Þetta er fullkomið áfall“ Trúir á lausn þrátt fyrir vantrauststillögu Formaður SÁÁ bjartsýnn og Icelandair svarar fyrir sig Þrír kærðir fyrir líkamsárásir „Ég hef nú ekkert verið að gráta yfir þessu“ Lét lífið á Keflavíkurflugvelli Sektaður fyrir að skila ekki yfirliti um heimagistingu Enn þykknar upp hjá SÁÁ Ljósagatnamótin eigi að duga næstu tuttugu ár Allir stjórnmálaflokkar, Áfram Ísland og Sjá til skoðunar Kemur ekki til greina að Ísland segi sig frá stríðsglæpadómstól Aðstoðarframkvæmdastjóri SA: „Frekari launahækkanir væru eins og olía á eldinn“ Esjan er hvít en ekki lengi Gera ekkert í að lögregla hafi eytt sönnunargögnum Furðar sig á því að nefndin hafi ekki verið upplýst fyrr Sjá meira