Lífið

Terminator og frú klæðast 66° Norður

Hjónin verða vafalaust glæsileg í úlpunum sínum.
Hjónin verða vafalaust glæsileg í úlpunum sínum.
Arnold Scwarzenegger ríkisstjóri Kaliforníu og kona hans Maria Shriver fá fatnað frá 66° norður í jólagjöf. Búningahönnuður nokkur í Hollywood, kunningjakona Sigurjóns Sighvatssonar, kvikmyndaframleiðanda og eins eiganda 66° Norður leitaði til hans á dögunum af því erfiðlega gekk að finna dúnúlpu í þeirri stærð sem hana vantaði. Úlpan átti vissulega að vera í stærri kantinum, enda ætluð sem jólagjöf handa Terminatornum sjálfum.

Schwarzenegger er ekki sá eini sem fær íslenskan útivistafatnað í jólagjöf. Á dögunum keyptu forstjóri Universal kvikmyndafyrirtækisins og eiginkona hans jólagjafir handa vinum og vandamönnum í netverslun 66¨° og í fyrra keypti Yoko Uno hundrað Þórsmörk Parka dúnúlpur í jólagjafir. Þá fá allir starfsmenn á vinnustofu Ólafs Elíassonar gjafir frá 66°.

Sigurjón segir að fyrirtækið hafi lítið auglýst, en að hróður varanna hafi borist manna á milli, og hinir ýmsu einstaklingar hafi verið duglegir að kynna vörurnar. ,,Eli Roth og Quentin Tarantino hafa til dæmis verið afar duglegir, án nokkurrar hvatningar að kynna og gefa fötin." segir Sigurjón.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.