Lífið

Bjartur leitar að sex ára vinningshafa

Bókaforlagið Bjartur leitar nú að sex ára dreng frá Akureyri sem það vill bjóða til Evrópu. Þetta kann að hljóma undarlega fyrir mörgum en fyrir þessu er allsérstök ástæða.

Forsaga málsins er sú að fyrr í mánuðinum hafði sex ára drengur samband við forlagið sem hafði undir höndum bréf sem hann hafði fundið inni í bókinni Harry Potter og blendingsprinsinn.

Á bréfinu stóð: Harry Poter. Eintak nr 100.000. Gjafabréf. Vinsamlegast hafið samband við Bókaforlagið Bjart.

Erindi drengsins kom flatt upp á starfsmenn forlagsins, enda tvö ár síðan hundrað þúsundasta eintakið af Harry Potter bók seldist á Íslandi.

Í tilkynningu frá Bjarti skrifar Guðrún Vilmundsdóttur að bréfið hafi verið sett inn í bók sem var til sölu fyrir tveimur árum síðan, þegar hundrað þúsundasta Potter-bókin seldist. Eintakið hafi svo lent neðarlega í bunkanum og ekki selst, kannski verið endursent á bókalager forlagsins þar sem það hefur líklega legið í einhvern tíma áður en það rataði í hillur bókaverslunar á Akureyri.

Guðrún segir að Bjartur standi auðvitað hin fögru fyrirheit sem kynnt eru í gjafabréfinu. Icelandair ætlar að fagna þessum hundrað þúsundasta Harry Potter-kaupanda með Bjarti og bjóða honum 2 farmiða til Evrópu og Bjartur skaffar farareyri.

"Nema hvað. Við sagnfræðirannsóknirnar sem nauðsynlegar voru til þess að átta sig á ferð bókarinnar síðustu tvö árin þurfti að opna margar skúffur og skoða mörg skjöl í höfuðstöðvum forlagsins. Þetta var nokkurs konar spæjaravinna og færðist móður í menn þegar þeir voru að nálgast lausn gátunnar: og í öllum hamaganginum týndist símanúmer handhafa gjafabréfsins. Bjartur auglýsir því hér með eftir 100 þúsundasta Harry Potter-kaupandanum; handhafa gjafabréfsins, Akureyringnum knáa sem sendi okkur fax þann 3.10.2007", segir Guðrún.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.