Innlent

Fyrstu síldinni landað

Fyrstu síldinni á þessari haustvertíð var landað á Fáskrúðsfirði og Höfn í gær, þegar þrjú skip lönduðu á bilinu 100 til 150 tonnum hvert. Síldin, eða Suðurlandssíldin, eins og þessi stofn er kallaður, er flökuð og fryst til manneldis. Eitthvað er þó enn saltað í tunnur á Fáskrúðsfirði.

Að sögn skipstjórans á Jónu Eðvalds fer vertíðin hægar af stað núna en í fyrra, því þá var kominn kraftur í veiðina strax upp úr mánaðamótum. Ekki hafa enn fundist stórar torfur, en skipin leita nú með suðurströndinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×