Lífið

Britney sættist við móður sína

Britney og Lynne á góðri stundu
Britney og Lynne á góðri stundu MYND/Getty

Í kjölfar þess að Britney Spears missti tímabundið forræði yfir sonum sínum tveimur mun hún hafa leitast eftir sáttum við móður sína. Spears og móðir hennar Lynne voru ávallt nánar en þær hættu að talast við í sumar eftir að Britney afhenti móður sinni bréf með særandi athugasemdum.

Lynne mun þó hafa reynt að ná sambandi við dóttur sína undanfarið en alltaf komið að lokuðum dyrum. Nú mun Spears hafa gefið færi á sér og flaug móðir hennar rakleiðis til Los Angeles til að vera með Spears yfir helgina. Með í för var Jamie Lynn litla systir Spears.

Lítið fór fyrir djammi hjá söngkonunni en þó dreif ýmislegt á daga hennar að venju. Þær systur fóru til dæmis á rúntinn til að kaupa sér skyndibitamat. Ljósmyndarar umkringdu bílinn þar sem þær sátu ógreiddar í íþróttagöllum og hámuðu í sig Taco. Þær komust hvorki lönd né strönd í lengri tíma og vissu ekki hvort þær áttu að gráta eða hlæja. Þá bauð Spears móður sinni og systur í villu sína í Malibu en á meðan var brotist inn á heimili hennar í Los Angeles og leikur grunur á að kynlífsmyndböndum hafi verið stolið.

Britney á svo strangar vikur framundan en dómari hefur gefið henni fyrirmæli um að sækja þrjá tíma hjá fjölskylduráðgjafa ásamt Kevin Federline, fyrrverandi eiginmanni sínum, auk þess að fara í þrjá einkatíma. Þá þarf hún að gangast undir tvö lyfjapróf í viku fram til 26. október þegar hún á að mæta fyrir rétt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.