Lífið

Kryddin keppa við kílóin

Kryddpíurnar árið 1995
Kryddpíurnar árið 1995 MYND/Getty

Það er deginum ljósara að kryddpíurnar, sem halda af stað í endurkomutónleikaferðalag í byrjun desember, ætla að vera í sínu allra besta formi þegar þær troða upp í hinum ýmsu heimshornum. Þær verða mjórri með hverjum deginum sem líður og er bara að vona að eitthvað verði eftir af þeim þegar þær stíga loks á stokk, tæpum áratug eftir að þær komu síðast saman.

Victoria Beckham gengur lengstMYND/Getty

Fína kryddið, Victoria Beckham, hefur þó greinilega vinninginn en þær Geri Halliwell og Mel B. koma fast á hæla heinni. Beckham sagði í nýlegu viðtali við tímaritið People að það væri mikill munur á því að vera með átröskun og að hafa stjórn á mataræðinu.

 

MYND/Getty

Margir hafa velt því fyrir sér hvort hún sé haldin átröskun en Beckham blæs á allt slíkt tal. „Ég fer að sjálfsögðu stundum út að borða og þá fæ ég mér það sem mig langar í en venjulega reyni ég að hafa stjórn á mataræðinu."

 

Halliwell er búin að koma sér í gott formMYND/Getty

Halliwell hefur svo um nokkurra ár skeið stundað líkamsræktina af miklu kappi en hún mun hafa gefið vel í núna rétt fyrir tónleikaferðina.

 

Mel B eignaðist dóttur í vor en hefur verið fljót að koma sér í formMYND/Getty

Mel B hristir síðan af sér kílóin í beinni en hún tekur þátt í danskeppninni Dancing With The Stars sem sýnd er vestanhafs um þessar mundir.

Annars er það að frétta af stúlkunum að þær hafa bætt við fjölda tónleika bæði í Bretlandi og Bandaríkjunum vegna gífurlegrar eftirspurnar. Þá er ný smáskífa væntanleg sem verður sú fyrsta í sjö ár.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.