Ólöglegur einkadans enn í boði á Goldfinger 4. október 2007 13:12 Geiri neitar því að hann bjóði upp á dans í lokuðu rými.
Súlustaðurinn Goldfinger býður viðskiptavinum sínum enn upp á einkadans að tjaldabaki, þrátt fyrir að slíkt sé bannað með öllu. Súlustaðurinn missti leyfi til að bjóða upp á nektasýningar af hvers kyns tagi í sumar og staðfesti sýslumaðurinn í Kópavogi það í samtali við Vísi í dag. Blaðamaður á vegum Vísis heimsótti staðinn í gær. Þar mætti hann hópi föngulegra og fáklæddra kvenna sem þar voru til að bjóða viðskiptavinum þjónustu. Fljótlega gaf sig á tal við hann rússnesk þokkagyðja sem bauð honum upp á einkadans. Fyrst fimm mínútna dans á bak við tjöld og síðan tíu mínútna dans. Í bæði skiptin tók barþjónn staðarins við greiðslu sem var samtals 16 þúsund krónur. Á meðan seinni dansinum stóð gaf sú rússneska blaðamanni símanúmer sitt og vildi ólm hitta hann utan vinnutíma. Þegar haft var samband við stúlkuna í dag vildi hún hins vegar eingöngu hitta blaðamanninn í lokuðu rými á Goldfinger. Þegar blaðamaður spurði Ásgeir Davíðsson, eiganda Goldfingers, hvort að boðið væri upp á svokallaðan einkadans á staðnum hans neitaði hann því. Þegar blaðamaður sagði honum að hann hefði fengið slíkan dans í gær vísaði hann ábyrgðinni á stúlkuna sem bauð dansinn og barþjóninn sem tók við greiðslunni. Hann neitaði því alfarið að sú þjónusta sem hann byði upp á væri ólögleg. Nú er til meðferðar hjá dómsmálaráðuneytinu stjórnsýslukæra Ásgeirs á hendur þeim sem stoppa vilja starfsemi súlustaða eins og Goldfinger.
Mest lesið Ákærð fyrir að frelsissvipta dreng eftir dyraat Innlent Ingvar útskrifaður úr meðferð Innlent „Fyrir vikið er flokkurinn á hverfandi hveli“ Innlent Fínasta grillveður í kortunum Innlent Litla kaffistofan skellir í lás Innlent Varar við því að stórvirkjun í Skagafirði verði útilokuð Innlent Vísað á brott vegna vímuefnaneyslu, ekki afskræmds varaforseta Erlent Þingfundi ítrekað frestað meðan þingflokksformenn funda Innlent Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Innlent „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Innlent Fleiri fréttir Flakk á fylginu og brunamótamatið vanáætlað Lögregla varar við „Nígeríubréfum“ og öðrum netglæpum Veita engar upplýsingar um tilboðið í Háholt Nýju tilboði í Háholt svarað með gagntilboði Tilkynningum til barnaverndar fjölgaði um tíu prósent árið 2024 Tveir skjálftar úti á Reykjaneshrygg Innbrot á veitingastað og grunur um íkveikju í bifreið Veik stofnun skaði fjárhag ríkissjóðs Barnasáttmálinn verið þverbrotinn í barnvænu sveitarfélagi Þorgerður niðurlægi konur með því að kalla Trump heillandi „Menn eru alla vega að vinna með sömu tölu“ Sögulegur NATO-fundur, umræðumet í uppsiglingu og afmæli í Heiðmörk „Þetta er svona hús sem er alltaf verið að flytja í og úr“ Bíll valt í Kópavogi Líkir veiðigjaldaáformum við sóvéska eignaupptöku Komu sextán dvalarleyfishöfum af Gasasvæðinu Heiðrún Lind fóðri málflutning með alvarlegum rangfærslum Sameiningarhugur á Vestfjörðum Rannsókn á andláti í Garðabæ lokið Orð Kristrúnar vöktu „gott bros“ Bandaríkjaforseta Gæsluvarðhald aftur framlengt um fjórar vikur Var ekki með réttindi til að aka hjólinu sem átti ekki að vera í umferð Bassi Maraj sakfelldur fyrir líkamsárás Lokanir á brúnni yfir Jökulsá í kvöld Rangstæð valkyrja sem skilji ekki frumvarpið Flagga íslenska þjóðfánanum í ólöglegri göngu Læknasamningur gæti orðið hvati að oflækningum Sjúkratryggingar fagna skýrslu Ríkisendurskoðunar Sjúkratryggingar réðu illa við læknana í Reykjavík Benedikt nýr skólameistari VMA Sjá meira