Innlent

200 gáfu blóð í dag

Alls svöruðu 200 manns kalli Blóðbankans í dag og gáfu blóð. Vegna sjúkdóma, bráðra veikinda, aðgerða og slysa á síðustu dögum og vikum var mikil þörf á blóðhlutum í bankanum og bað Blóðbankinn því í morgun blóðgjafa um að leggja sitt af mörkum. Starfsfólk bankans er ánægt með viðbrögðin.

Að sögn starfsfólks Blóðbankans er þörf á öflugum stuðningi blóðgjafa næstu vikurnar þar sem mikil þörf er fyrir blóðhluta núna í heilbrigðisþjónustunni vegna aðgerða, slysa og sjúkdóma.

"Einungis með því að eiga nægar blóðbirgðir getum við tryggt öryggi sjúklinga í heilbrigðisþjónustunni," segir Sveinn guðmundsson forstöðumaður Blóðbankans,




Fleiri fréttir

Sjá meira


×