Innlent

Áætlað virði sameinaðs félags 60-70 milljarðar

MYND/Stefán

Áætlað virði sameinaðs félags Reykjavik Energy Invest og Geysi Green Energy verður á bilinu 60- 70 milljarðar. Þetta kom fram á blaðamannafundi í höfuðstöðvum Orkuveitu Reykjavíkur í dag þar sem greint var frá sameiningu félaganna.

Reykjavik Energy Invest er í meirihlutaeigu Orkuveitu Reykjavíkur, en stærsti hluthafi Geysis Green er FL Group. Bjarni Ármannsson stjórnarformaður Reykjavik Energy Invest, verður stjórnarformaður hins sameinaða félags sem mun heita Reykjavik Energy Invest. Reykjavik Energy Invest fer með stærri hlut um tíma eða um 55 prósent á móti 45 prósenta hlut Geysis. Stefnt er að því að fleiri fjárfestar komi að fyrirtækinu þegar fram líða stundir, svo sem Atorka, Saxhóll, Glitnir og Bjarni Ármannsson. Stefnt er að skráningu á alþjóðamarkaði á næstu tveimur árum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×