Innlent

Eldur í íþróttahúsinu á Bolungarvík

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Slökkvilið var kallað að íþróttahúsinu á Bolungarvík í morgun. Myndin er úr safni og er ekki tekin í Bolungarvík.
Slökkvilið var kallað að íþróttahúsinu á Bolungarvík í morgun. Myndin er úr safni og er ekki tekin í Bolungarvík.
Eldur kviknaði í íþróttahúsinu á Bolungarvík um ellefuleytið í morgun. Að sögn lögreglunnar á Vestfjörðum gekk slökkvistarf vel og er því lokið. Lögreglan segir að upptök eldsins hafi verið í þaki hússins og er stór hluti af því ónýtur.

Vestfjarðamótið í sundi stóð yfir í Bolungarvík þegar eldurinn kviknaði og var því talsverður fjöldi fólks í húsinu. Greiðlega gekk að koma fólkinu út og segir lögreglan að enginn hafi verið í hættu.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×